Fimmti tapleikur Snæfells í röð? 11. mars 2005 00:01
KR-ingar geta slegið út Snæfell í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Intersportdeildar karla en leikurinn fer fram klukkan 16.00 í DHL-höllinni í dag. Á sama tíma geta Íslandsmeistarnir úr Keflavík einnig komist áfram og jafnframt slegið nágranna sína í Grindavík út þriðja árið í röð og þá alltaf á þeirra eigin heimavelli í Röstinni í Grindavík. KR vann fyrsta leikinn í Hólminum með þriggja stiga sigurkörfu Aarons Harper 7 sekúndum fyrir leikslok en Harper hefur nú tryggt sínu liði sigur tvo leiki í röð. KR-ingar ættu að vera reynslunni ríkari. Fyrir ári síðan voru þeir í sömu stöðu, unnu fyrsta leik átta liða úrslitanna í Grindavík, 95-99 , en töpuðu síðan næstu tveimur og duttu út. Í heimaleiknum skoraði Grindavík 42 stig í fyrsta leikhluta sem liðið vann með 29 stigum og leikinn á endanum með 13 stigum, 95-108. Grindavík vann síðan oddaleikinn í Grindavík með fimm stigum, 89-84. KR er fimmtánda liðið sem nær að stela sigri í fyrsta leik á útivelli í sögu úrslitakeppninnar í þeim einvígum sem tvo sigra hefur þurft til að komast áfram. KR-ingar eru að ná þessu í sjötta sinn sem er það langmesta sem eitt félag hefur afrekað en 11 af 14 liðum sem vinna fyrsta leik á útivelli hafa komist áfram. KR á tvö af þessum þremur skiptum sem það hefur mistekist, i fyrra og svo í undanúrslitum gegn Keflavík 1991. Snæfellingar settu met í fyrra þegar þeir unnu sex fyrstu leiki sína í sömu úrslitakeppni en síðan þá hefur gengi liðsins gjörbreyst og hefur liðið nú tapað fjórum leikjum í röð í úrslitakeppni, þremur gegn Keflavík í úrslitunum í fyrra og svo fyrsta leik átta liða úrslitanna gegn KR í fyrrakvöld. Nú reynir á liðið sem er komið upp að vegg og má ekki misstíga sig oftar.
Körfubolti Mest lesið Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Handbolti Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Enski boltinn Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum Fótbolti „Algjörlega niðurbrotinn eftir þetta tap“ Fótbolti Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Fótbolti Fleiri fréttir „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM „Allt er þegar þrennt er“ Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Allar tilfinningarnar í gangi Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik „Tölfræðin er eins og bikiní“ Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld Táningi hótað lífláti þrátt fyrir sigurinn á Víkingum Glóandi gómar hjálpa til í baráttunni við alvarleg höfuðhögg „Maður er búinn að vera á nálum“ Vann mótið með lokahögginu sem var magnað vipp úr sandinum Hentu ferðatöskum inn á völlinn í miðjum leik Danirnir hjá Norwich fögnuðu óförum Víkinga berir að ofan Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Sjáðu þáttinn um fyrsta N1-mót kvenna: Smá stress, snitsel og Sandra María skrifaði á skó Khalil Shabazz til Grindavíkur Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Sjáðu dramtíkina á Króknum í gær: Aftur fengu Þróttarakonur rautt spjald Sjá meira