Sport

Singh í 129. sæti

Banadríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur fjögurra högga forystu að loknum tveimur hringjum á Pebble Beach mótinu í golfi í Kaliforníu. Mickelson er á 15 höggum undir pari sem er besta skor á mótinu til þessa eftir 36 holur. Mike Weir frá Kanada er í öðru sæti á 11 höggum undir pari. Það gengur hins vegar ekki vel hjá stigahæsta kylfingi heims, Vijay Singh. Hann er á tveimur höggum yfir pari í 129. sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×