Sport

Fyrrum afreksmenn leggja grunninn

Íþróttasamband Íslands er nú langt komið með að setja á stofn sérstök samtök íslenskra Ólympíufara, það er samtök þeirra íslenskra íþróttamanna sem hafa komið fram fyrir Íslands hönd á Sumar- eða Vetrarólympíuleikum. Á vef ÍSÍ kemur fram að Framkvæmdastjórn ÍSÍ hafi falið Benedikt Geirssyni, formanni Afrekssviðs, að hafa frumkvæði í málinu frá og með síðasta hausti og fékk Benedikt fjóra fyrrum þátttakendur Ólympíuleika í lið með sér til að undirbúa stofnun slíkra samtaka. Undirbúningshópurinn hefur nú hist á nokkrum fundum og m.a. unnið að gerð laga fyrir samtökin ásamt því að undirbúa stofnfundinn sem fyrirhugaður er 10. mars næstkomandi. Stjórn þessara nýju samtaka mun jafnframt gegna hlutverki íþróttamannanefndar ÍSÍ. Benedikt leitaði til fjögurra fyrrum afreksíþróttamanna þjóðarinnar en í undirbúningshópnum eru ásamt Benedikt, Kristján Arason, Íris Grönfeldt, Guðmundur Gíslason og Steinunn Sæmundsdóttir sem er sú eina í hópnum sem er tengd vetrarleikunum. Undirbúningshópurinn: Benedikt Geirsson, formaður Afrekssviðs ÍSÍ Kristján Arason fyrrum handknattleiksmaður, (Los Angeles 1984, Seoul 1988). Íris Grönfeldt fyrrum frjálsíþróttakona, (Los Angeles 1984, Seoul 1988). Guðmundur Gíslason fyrrum sundmaður, (Róm 1960, Tokyo 1964, Mexico 1968, Munchen 1972). Steinunn Sæmundsdóttir, fyrrum skíðakona, (Innspruck 1976, Lake Placid 1980)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×