Sport

Roddick í undanúrslit

Bandaríkjamaðurinn Andy Roddick tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis. Mótherji Roddicks, Rússinn Níkolaj Davydenko varð að hætta vegna meiðsla. Roddick hafði unnið tvö fyrstu settin og var yfir 4-1 í þriðja setti þegar þegar Rússinn gafst upp. Andy Roddick mætir Argentínumanninum David Nalbandian í úrslitum. Nalbandian vann Ástralann Lleyton Hewitt í 5 setta leik sem stóð í rúmar 3 klukkustundir. Hewitt vann tvö fyrstu settin en Nalbandian jafnaði metin og knúði svo fram sigur í fimmta setti. Lindsay Davenport frá Bandaríkjunum sló áströlsku stúlkuna Aliciu Molik út úr keppni í morgun, sigraði 6-4, 4-6 og 9-7. Davenport keppir við Nathalie Decy Frakklandi í undanúrslitum en sú franska sló Patty Schnyder út úr keppni 5-7, 6-1 og 7-5.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×