Mótmæla stöðvun á vítamíndrykk 8. janúar 2005 00:01
Forstjóri Ölgerðinnar Egils Skallagrímssonar, Andri Þór Guðmundsson, gagnrýnir að dreifing vítamínbætta drykkjarins Kristals Plús hafi verið stöðvuð. Vinnubrögð Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur séu samkeppnishamlandi mismunun og brot á jafnréttisreglu, þar sem horft sé framhjá vítamínbættum drykkjum erlendra framleiðenda hér á landi sem hafi ekki leyfi. "Við teljum illilega á okkur brotið. Vítamínbættar drykkjarvörur hafa flætt hér yfir markaðinn ár eftir ár og eru óáreittar í verslunum. Við skiljum ekki af hverju eitt er ekki látið yfir alla ganga," segir Andri. Unnið sé á móti hollustumarkmiðum og vöruþróun innlendra aðila. Rögnvaldur Ingólfsson, deildarstjóri matvælaeftirlitssviðs Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, segir ekki keppt að því að gera innlendum framleiðendum erfiðara fyrir. Þar sem frjálst flæði vítamínbættra vara sé innan Evrópska efnahagssvæðisins sé ekki skoðað hvort þær erlendu uppfylli allar íslenskar reglur áður en þær fari á markað. Rögnvaldur segir þó meginmun á þeim erlendu og drykk Ölgerðinnar því flestir erlendu drykkjanna hafi fengið leyfi sinna stjórnvalda. Drykkur Ölgerðarinnar hafi hins vegar aldrei verið skoðaður. Hann hafi farið á markað án allra leyfa: "Í dreifingarbanninu felist ekki dómur um hvort drykkurinn verði leyfður eða ekki." Andri segir menn Ölgerðarinnar hafa talið 43 vítamínbætta drykki í hillum stórmarkaða í vikunni. Á fundi með Umhverfisstofnun og umhverfis- og tæknisviði Reykjavíkurborgar, þar sem sótt hafi verið um leyfi fyrir Kristal Plús, hafi þær upplýsingar fengist að umhverfis- og tæknisviðið hafi gert athugasemdir við þrjár erlenda vítamínbætta drykki í janúar. Rögnvaldur segir það rétt. Þeir drykkir hafi fengið viðurkenningu erlendra stjórnvalda.
Fréttir Innlent Mest lesið Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Fleiri fréttir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Sjá meira