Dreymir um úrvalsdeildina 5. janúar 2005 00:01
Tímabilið fór ekki vel af stað hjá Heiðari og honum gekk ákaflega illa að skora. Hann hafði aðeins skorað eitt mark í deildinni þar til hann skoraði tvö mörk gegn Derby 16. október síðastliðin. Síðan hefur Heiðar farið mikinn með liði Watford en hann er alls búinn að skora 13 mörk í vetur. Frammistaða hans hefur vakið athygli á Englandi og síðustu daga hefur hann verið orðaður við 1. deildarlið West Ham og úrvalsdeildarlið Charlton, sem Hermann Hreiðarsson leikur með. "Ég hef heyrt af þessum áhuga í blöðunum en sjálfur hef ég ekki heyrt neitt og veit ekki hvaðan þetta kemur," sagði Heiðar í samtali við Fréttablaðið í gær. "Ég veit ekkert hvort eitthvað sé til í þessu en það væri óneitanlega gaman ef það væri áhugi á mér." Heiðar spilaði með Watford í úrvalsdeildinni er hann fyrst gekk til liðs við félagið árið 2000. Eftir að Watford féll úr úrvalsdeildinni hefur Heiðar nokkrum sinnum verið orðaður við lið í úrvalsdeildinni en hingað til hefur lítið alvara verið á bak við þær sögusagnir. Frammistaða Heiðars í vetur gæti þó fleytt honum aftur í deild þeirra bestu á Englandi og hann neitar því ekki að þangað væri gaman að komast á ný. "Auðvitað dreymir mann um að leika í úrvalsdeild. Annað væri alveg galið. Annars er ég ekki að missa neinn svefn yfir þessum sögusögnum. Ég einbeiti mér bara að því að spila áfram vel og skora fyrir Watford. Svo kemur bara í ljós hvort það skilar mér einhverju," sagði Heiðar sem á átján mánuði eftir af samningi sínum við félagið. Hann þakkar góðu gengi í vetur því að hann sé loksins orðin laus við meiðsli. "Ég hef verið að burðast með meiðsli í tvö ár og er loksins orðinn 100%. Fyrir vikið líður mér vel og það spillir ekki fyrir að liðið hefur verið að spila ágætlega og ég hef verið að fá færi sem mér hefur gengið ágætlega að nýta," sagði Heiðar Helguson.
Enski boltinn Mest lesið „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Töpuðu 15-0 í síðasta leik og mættu ekki til leiks í gær Íslenski boltinn Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Enski boltinn Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Fótbolti Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Fernandes ósáttur: „Dómarinn baðst ekki afsökunar“ Enski boltinn Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport Uppgjör: KR-Stjarnan 1-2 | Örvar kom Stjörnunni inn í titilbaráttuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta félagið með tvö fórnarlömb skotárása í liðinu Græddu meira en milljarð á kokteilum á US Open Sjáðu gullstrákana í Vestra fagna: „Vorum bara miklu stærra lið“ Van Dijk um Rio: Draumabyrjun en hann verður að vera auðmjúkur Rio setti nýtt Liverpool met Óskar Hrafn: Stundum hata ég fótbolta Jökull: Förum ekki hærra með svona frammistöðu Inter byrjar tímabilið á stórsigri Örvar: Tökum þessa þrjá punkta og förum brosandi heim Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Uppgjör: KR-Stjarnan 1-2 | Örvar kom Stjörnunni inn í titilbaráttuna Ísak Andri lagði upp mark í langþráðum sigri Selja „Isak er rotta“ treyjur fyrir utan völlinn og eldspýtur fylgja með Ólympíumeistarinn hitti ekki dýnuna og missir af HM Slot hefur enga samúð með Eddie Howe vegna Isaks Markvörður ÍBV kominn með fimm gul spjöld í sumar Heljarmennið sem fagnaði eins og Schwarzenegger Sjáðu dramatíkina í Krikanum og mörkin fyrir norðan „Við eigum bestu stuðningsmenn á landinu“ Foreldrum Bellinghams bannað að koma í klefann hjá Dortmund Fóru af hjörunum eftir að ljósmyndari fór inn á „Óskar seldi mér bara hugmyndina sína“ „Getur ekki látið 140 milljóna punda mann í varaliðið“ Stjörnurnar samglöddust Fleetwood sem vann loks í 164. tilraun Fer í aðgerð á föstudag og frá í sex til átta mánuði „Það urðu smá árekstrar en heilt yfir var þetta ótrúlega vel skipulagt“ Isak utan vallar en þó í forgrunni Saka frá í mánuð og missir af Liverpool Botna lítið í Amorim: „Hann er ein taugahrúga“ Rooney feginn að Dowman tók ekki vítið Sjá meira