Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 10:26 Strákarnir okkar hafa verið dyggilega studdir síðustu stórmót. Vísir/Vilhelm Ljóst er að færri komast að en vilja til að sjá karlalandslið Íslands í handbolta á HM í Þýskalandi í janúar. HSÍ hefur þó orðið sér úti um hundruð miða sem fara í sölu í hádeginu í dag.
Miðasala hófst klukkan 12 á Stubbi og er hægt að nálgast hana hér. Ekki er þó hægt að kaupa miða á alla leiki Íslands því uppselt er á leik Íslands í milliriðli 23. janúar, komist liðið þangað eins og búast má við. Hægt verður að kaupa miða á eftirfarandi leiki Íslands í H-riðli sem leikinn verður í Magdeburg: 15. janúar 2027 Ísland – Barein 17. janúar 2027 Ísland – Japan 19. janúar 2027 Ísland – Norður-Makedónía Auk þess verða miðar í boði á eftirfarandi leiki í milliriðli í Hannover: 21. janúar 2027 Fyrsti leikur Íslands í milliriðli 25. janúar 2027 Þriðji leikur Íslands í milliriðli Ef Ísland kemst áfram í milliriðil, en þangað fara þrjú efstu lið hvers riðils, mun liðið spila við liðin þrjú sem enda efst í G-riðli (Danmörk, Slóvenía, Bandaríkin og Angóla). HSÍ vekur athygli á því að aðeins er hægt að kaupa miða á staka leiki og er miðafjöldi takmarkaður. Samkvæmt upplýsingum Vísis eru allt frá 100 til 1.000 miðar í boði á hvern leik. Börn fjögurra ára og yngri þurfa ekki að kaupa miða. Þegar miðakaupum er lokið í gegnum Stubb geta liðið nokkrir dagar þar til miðarnir berast á það netfang sem gefið er upp við kaup. Afhendingartími ræðst af álagi hverju sinni og eru stuðningsmenn beðnir um að sýna biðlund.
HM karla í handbolta 2027 Landslið karla í handbolta Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Fleiri fréttir FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Sjá meira