Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2026 18:01 Perla Sól Sigurbrandsdóttir fær sig frá Louisiana yfir til Flórída. Getty/ Ross Parker Perla Sól Sigurbrandsdóttir hefur tekið þá ákvörðun að færa sig á milli háskóla í Bandaríkjunum. Hún færir sig frá Louisiana State University til University of Florida.
Emily Glaser, yfirþjálfari kvennaliðs Flórída í golfi, tilkynnti á heimasíðu skólans að Perla Sól hefði gengið til liðs við skólann. Íslendingurinn var hjá LSU á síðasta tímabili, þar sem hún var nýnemi. „Velkomin í Fenið! Við erum spennt að hafa þig hér,“ segir í tilkynningunni á samfélagsmiðlum. „Ég valdi Flórídaháskóla vegna frábærra þjálfara og góðs liðsanda. Þetta er sérstakur staður vegna sterkrar hefðar, áherslu á nám og framúrskarandi aðstöðu. Það hefur alltaf verið draumur minn að vera Florida Gator,“ er haft eftir Perlu Sól sjálfri. Perla hefur unnið stóra titla á Íslandi. Hún varð Íslandsmeistari í golfi árið 2022 og Íslandsmeistari í holukeppni 2023. Hún hefur keppt margoft fyrir lið Evrópu, þar á meðal í Junior Solheim Cup 2024 en Perla varð fyrsti íslenski kylfingurinn til að keppa á mótinu. Perla Sól Sigurbrandsdóttir fagnaði einnig sigri á Evrópumeistaramótinu í golfi fyrir sextán ára og yngri sem fram fór í Finnlandi sumarið 2022. View this post on Instagram A post shared by Florida Gators Women's Golf (@gatorswgolf)
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira