Innlent

Egeland gat ekki mætt á Norðurlandaráðsþingið

 

Jan Egeland, yfirmaður neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna, sá sér ekki fært að mæta á þing Norðurlandaráðs, vegna þess hve illa hefur gengið að safna fé til hjálparstarfs á jarðskjálftasvæðinunum í Pakistan.

Þetta kom fram í ræðu Rannveigar Guðmundsdóttur, formanns Norðurlandaráðs, á Norðurlandaráðsþinginu í Reykjavík í dag. Egeland átti að vera einn af aðalræðumönnum á þinginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×