Innlent

Konu og barns leitað

Leit stendur yfir á öllu Austurlandi að konu og barni. Björgunarsveitir hafa leitað meðfram vegum á Austurlandi en eftirgrennslan er jafnframt hafin um allt land. Konan var gestkomandi á bæ í Breiðuvík og fór ásamt tveggja ára bróðurdóttur sinni í bíltúr um hádegisbil í dag. Hún hafði hug á að fara stuttan bíltúr þar í kring en þær hafa ekki skilað sér til baka.

Það voru foreldrar stúlkunnar sem höfðu samband við lögreglu en lögreglan á Fáskrúðsfirði fer með málið. Konan og stúlkan voru í ljósgráum Toyotu Landcruser jeppa sem er með dökkum filmum í rúðum. Ef fólk telur sig hafa orðið þeirra vart er það beðið að hafa samband við lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×