Gistiskýlið yfirfullt í kuldanum 25. október 2005 18:50
Gistiskýli fyrir heimilislausa í höfuðborginni yfirfylltist í nótt og þurftu starfsmenn að taka við fleirum en húsrúm leyfði, til að vísa ekki fólki út í nístandi kuldann. Frostið í nótt fór niður í fimm gráður. Útigangsmenn skipta tugum í Reykjavík. Þeim hefur fjölgað verulega að undanförnu og oft þarf að vísa þeim frá. Gistiskýli er rekið í höfuðborginni til að skjóta skjólshúsi yfir þá sem ekki eiga í önnur hús að venda. Heimilislaus maður sem ekki vill láta nafn síns getið, segir gott að geta verið i gistiskýli á nóttinni, en á daginn fer hann á kaffistofu Samhjálpar til að fá sér að borða. Hann segir flesta daga eins hjá sér; hann sofi í gistiskýlinu en eyði deginum á kaffistofu Samhjálpar. Í gistiskýlið að Þingholtsstræti, sem velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur rekið frá því í haust, komast færri að en vilja, en þar er pláss fyrir fimmtán manns. Jónas Jónsson forstöðumaður Gistiskýlisins segir æ fleiri óska eftir húsaskjóli í gistskýlinu og síðustu vikur hafi þurft að vísa fólki frá. Hann segist greina aukningu heimilislausra á síðustu árum. Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands hefur í tæpt ár rekið Konukot við Eskihlíð, en þangað geta heimilislausar konur leitað, sem oftar en ekki eru að koma úr meðferð eða hafa nýlokið afplánun. Fimm til sex konur eru þar að jafnaði, en að sögn verkefnisstjóra Konukots, hafa um fjörutíu konur gist þar frá því húsið var opnað. Þeir sem leita til gistiskýlanna eru í misjöfnu ástandi. Unnið er að því að finna stærra og hentugra húsnæði fyrir gistiskýlið, hann segir borgaryfirvöld hafa tekið jákvætt í að aðstoða við það.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira