Innlent

Verðvernd og endurgreiðslur

Húsasmiðjan blæs til sóknar á bygginga- og heimilsvörumarkaði með því að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt lægsta verð. Það byggist á því að þeir fá vöru keypta hjá Húsasmiðjunni endurgreidda sjáist hún auglýst á lægra verði annars staðar innan fimmtán daga frá kaupum.

"Með þessu viljum við hnykkja á því að viðskiptavinir okkar njóti ávallt bestu kjara", segir Steinn Logi Björnsson forstjóri Húsasmiðjunnar. "Ef varan er ódýrari annars staðar lækkum við okkur og greiðum mismuninn."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×