Ætlar að kæra lognar sakir 25. október 2005 04:45 Eiður Eiríkur Baldvinsson Framkvæmdastjóri B2 starfsmannaleigunnar furðar sig á ásökunum á hendur fyrirtæki hans. Fréttablaðið/Heiða "
Lögfræðingur okkar er að vinna í þessum málum," segir Eiður Eiríkur Baldvinsson, framkvæmdastjóri starfsmannaleigunnar B2 ehf. Hann vísar þar til ásakana á hendur honum og fyrirtæki hans. "Þetta verður klárað fyrir dómstólum, en ekki í fjölmiðlum." Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður 2B, segir búið að ákveða að höfða meinyrðamál á hendur Guðmundi Gunnarssyni, formanni Rafiðnaðarsambandsins og Oddi Friðrikssyni, trúnaðarmanni starfsmanna á Kárahnjúkum. "Nú er kominn tími til að þessir verkalýðskarlar taki ábyrgð á orðum sínum. Með ólíkindum er að einn af forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar í landinu skuli halda að hann geti komist upp með að kalla menn glæpamenn, stýrandi vændishringjum, án þess að þurfa að taka afleiðingum orða sinna. Örlög launþegahreyfingarinnar eru hörmuleg að hafa slíka menn í forystu.", segir hann og tekur undir með Eiði um að fyrirtækið sé lagt í einelti. "Þetta eru óvenju rætin ummæli og gjörsamlega út úr korti." Sveinn Andri telur verkalýðsforystuna síst hafa hagsmuni erlends vinnuafls að leiðarljósi í aðgerðum sínum. "Menn sem setið hafa við kjötkatlana alla þessa tíð og virðist þeirra eina hlutverk að passa upp á bitlingana sína. Þeim er nákvæmlega sama um hagsmuni þessara manna. Aðalmálið virðist að vera nógu sniðugur að flæma þá í burtu," segir hann og telur undarlegt að innlent fyrirtæki sem fyrirfram hafi óskað eftir samstarfi við ASÍ og ráðgjöf um hvernig haga bæri hlutum mætti slíku viðmóti, meðan skatttekjur streymi úr landi vegna starfsemi ámóta fyrirtækja frá Eystrasaltinu og víðar.
Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira