Innlent

Íslenskir karlar eldast og fitna

Íslenskir karlar eru að fitna og eldast á sama tíma og konur virðast ráða betur við þyngdina og meðalaldur þeirra hækkar ekki jafn mikið og karla. Aukin velmegun er því ekki eingöngu sýnileg í miklum launamun heldur einnig á heilsu- og holdarfari.

Hagstofan hefur tekið saman tölur undanfarinna þrjátíu ára þar sem borið er saman heilsufar, staða á vinnumarkaði, og staða kynjanna almennt. Margt hefur breyst á þessum árum hvað varðar aldurssamsetningu og lífsvenjur. Þjóðin er að eldast því árið 1975 voru fjörutíu prósent kvenna undir tvítugu en nú eru þær aðeins tuttugu og níu prósent og er þróunin svipuð hjá körlum.

Fæðingartíðni hefur einnig lækkað úr tveimur komma sex börnum á hverja konu í tvö. Sem fyrr er meðalævilengd kvenna lengri en karla en bilið milli kynjanna hefur þó minnkað því meðalævilengd karla hefur aukist hlutfallslega meira en kvenna frá fyrsta kvennafrídeginum. Munurinn á meðalævi kynjanna er nú þrjú komma fimm ár en var fimm komma níu ár fyrir þrjátíu árum. Karlar hafa bætt rúmum átta árum við ævilengd sína en konur rétt rúmum fimm árum. Stúlkur sem fæðast nú geta vænst þess að verða áttatíu og tveggja ára, en drengir 79 ára.

Þjóðin er ekki bara að eldast heldur fitnar hún á sama tíma, því fólki yfir kjörþyngd hefur fjölgað síðustu árin. Á undanförnum árum hækkaði hlutfall kvenna yfir kjörþyngd úr þrjátíu og fjórum prósentum í þrjátíu og níu. Karlarnir hafa hér vinninginn því körlum yfir kjörþyngd hefur fjölgað úr þrjátíu og níu prósentum í fimmtíu og sjö. Og of feitum konum fjölgaði um fjögur prósent en of feitum körlum um sex prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×