Norræn samvinna ef fuglaflensufaraldur brýst út 25. október 2005 16:05
Heilbrigðisráðherrum Norðurlandanna hefur verið falið að finna hvar megi styrkja samvinnu norrænu landanna ef fuglaflensufaraldur brýst út á Norðurlöndum en yfirvöld í löndunum er öll vel á verði. Þetta kom fram á fundi forsætisráðherra norrænu ríkjanna í morgun. Forsætisráðherrar norrænu landanna boðuðu til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu í dag þar sem farið var yfir þau mál sem ráðherrarnir haf rætt á fundum sínum undanfarna tvo daga. Þar greindu ráðherrarnir frá því að þeir hefðu rætt sameiginleg viðbrögð við fuglaflensu. Hefur heilbrigðisráðherrum landsins verið falið að finna hvar megi styrkja samvinnuna á þessu sviði með það fyrir augum að koma í veg fyrir að fuglaflensa verði að faraldri á Norðurlöndum og hvernig brugðist verði við ef slíkt gerist. Mjög vel væri fylgst með þróun mála og ef til fuglaflensufaraldurs kæmi gæti gott samstarf á milli hinna norrænu ríkja verið afgerandi varðandi framleiðslu og drefingu bóluefna. Svalbarðadeilan var einnig rædd á blaðamannafundinum, en eins og kunnugt er hafa nokkrar þjóðir, þar á meðal Íslendingar, Rússar og Færeyingar, mótmælt því að Norðmenn taki sér einhliða yfirráðarétt yfir hafsvæðum við Svalbarða sem ekki er norskt land. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði Norðmenn og Íslendinga virða reglur innan hafsvæða hvorra annarra en að deilt væri um veiðar úr síldarstofninum við Svalbarða. Hann vonaðist til að samkomulag næðist við nýja ríkisstjórn Noregs um veiðar þar og sömuleiðis Rússa. Halldór sagði hins vegar ljós að Íslendingar hefðu undirbúið mál sem hugsanlega verður höfðað fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Hann vonaðist til að til þess komi ekki og að samkomulag náist. Danir hafa verið í forsæti í norrænu ráðherranefninni á þessu ári en Norðmenn taka við af þeim um áramótin. Ákveðið hefur verið næsti fundur forsætisráðherranna verði á Svalbarða í júní.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira