Tryggingar kosta hundruð þúsunda 25. október 2005 04:30 Sex ára á smábifhjóli Félagarnir í GP Ísland segja hjól sem þessi ná frá fimmtíu til áttatíu kílómetra hraða á klukkustund.
Evu Dögg Þórsdóttur, upplýsingafulltrúa Sniglanna, var brugðið er hún las um sex ára dreng á fimmtíu kúbika smábifhjóli í Fréttablaðinu á laugardag. "Hafa þarf skellinöðrupróf til að keyra svo kraftmikil hjól á götum úti, klæðast leðurfatnaði og vera með móturhjólahjálm," segir Eva Dögg. "Svona hjól má aðeins nota á lokuðum svæðum. Þau mega ekki vera á götunum þar sem þau eru bæði númerslaus og ljóslaus." Brynhildur Georgsdóttir, framkvæmdastjóri ökutækjasviðs hjá Umferðarstofu, staðfestir að prófskírteini þurfi til að nota hjól sem þetta á götunum. Tólf ára börn megi nota þau á lokuðum svæðum. Hún segir öll vélknúin götuhjól sem fari hraðar en fimmtán kílómetra á klukkustund skráningarskyld. "Tryggingafélögin meta þessi hjól einnig stranglega. Ef menn skrá þau fá þeir iðgjöld upp á nokkur hundruð þúsund krónur." Eva Dögg stendur ásamt Kristjáni Hafliðasyni og fleirum að félaginu GP Ísland. Markmið þess er meðal annars að setja upp og reka mótaraðir í akstursíþróttum. Eva segir félagið hafa sótt stíft í að fá leyfi til að keppa á slíkum hjólum en ekki fengið. Kristján segir að sumir hafi fengið að flytja hjólin inn sem leikföng en þá sé búið að takmarka hraða þeirra við þrettán kílómetra á klukkustund. "Reynt hefur verið að flytja þrjátíu til fjörutíu hjól inn til landsins en þau hafa verið endursend því þau hafa hvorki grindarnúmer né upprunanúmer." Brynhildur segir málið í klemmu, því sérstök æfingasvæði þurfi svo hægt sé að nota hjólin löglega. Áhuga skorti hjá sveitarfélögum að koma upp slíkum svæðum og engin hér hafi hlotið viðurkenningu. "Samgönguráðuneytið hefur lýst yfir áhuga á að ganga í málið og taka það til heildarendurskoðunar. Slíkt þarf að gerast í samráði við tryggingafélög, lögreglu, sveitarfélög og ráðuneytin sem standa að þeim sem og vélhjólafélög sem líta á þetta sem íþrótt," segir Brynhildur og bætir við að eitt af því sem þurfi að skoða sé að lækka aldur þeirra sem megi nota hjólin.
Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Sjá meira