Innlent

Héraðsdómur tekur fyrir tvö mál Hannesar í vikunni

MYND/Hari

Tvö mál Hannesar Hólsteinar Gissurarsonar verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni.

Á morgun verður mál Auðar Laxness gegn Hannesi, vegna meints ritstuldar Hannesar í fyrsta bindi ævisögu hans um Halldór Laxness, eiginmann Auðar, tekið fyrir í Héraðsdómi.

Á föstudag verður svo tekið fyrir mál Hannesar vegna aðfararhæfni dómsins í Englandi í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar gegn Hannesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×