Segja hrefnuna skorta æti 4. ágúst 2005 00:01 "
Þær eru ósköp magrar í ár," segir Gunnar Bergmann talsmaður félags Hvalveiðimanna en hann segir hrefunuveiðimenn hafa áhyggjur af því að lítið æti sé hér á slóðum hrefnunnar. "Menn hafa tekið eftir því að hún er mun spikminni en í fyrra," bætir Gunnar við. Hann segir að þar sem hrefnan sé flökkudýr geti vel farið svo að hún hverfi af Íslandsmiðum ef hún finni ekki næga fæðu hér við land. Hrefnuveiðimaður sem Fréttablaðið talaði við segir að varla sjáist sandsíli, trönusíli eða sjófuglar á veiðislóð. Einn þeirra sagði að ef þessir smærrr fiskar eru ekki til staðar fari hrefnan að leggja sér þorsk til munns í meira mæli eða komi sér hreinlega á önnur mið. Davíð Gíslason leiðangursstjóri á hvalveiðibátnum Nirði segir erfitt að meta eftir auganu hvort hrefnan sé almennt rýrari nú en í fyrra. Hann segir að fram fari fitu- og orkumælingar á hrefnunum og munu niðurstöður mælinganna liggja fyrir einhvern tíman í haust og fyrst þá verði hægt að draga ályktanir af holdarfari hrefnunar. Hann segir að tíðarfar ráði miklu um það hvort síli og sjófuglar séu á kreiki. "Það var til dæmis mjög lítið um síli og sjófugla í byrjun júli hér í Faxaflóa þar sem við erum við veiðar en svo var allt annað upp á teningnum seinna í mánuðnum," segir hann. Þorvaldur Gunnlaugsson sérfræðingur á Hafrannsóknarstofnun segir fátt benda til þess að hrefnan sé í grennra lagi í ár. "Ég fór í eina veiðiferð þar sem veiddar voru þrjár skepnur og tvær þeirra voru nokkuð feitar en sú þriðja var frekar illa á sig komin en hún hefur sennilegast verið nýkominn úr suðurhöfum," segir hann. Alls hafa veiðst 27 hrefnur í sumar af þeim 39 sem fyrirhugað er að veiddar verði á þessari vertíð. Dröfn veiddi tvær í fyrradag og Njörður eina í fyrrada og aðra í gær en Halldór Sigurðsson hefur ekki komist á miðin í all nokkra daga vegna brælu fyrir vestan. Að sögn Gunnars hefur ekki komið til neinna árekstra milli hvalveiðimanna og hvalaskoðenda frá því veiðar hófust.
Fréttir Innlent Mest lesið Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Klara Baldursdóttir er látin Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Konan sem féll í Brúará er látin Innlent Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Erlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Erlent Aftur logar eldur í Læradal Erlent Glittir í endurkomu sumarsins Veður Fleiri fréttir Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns „Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“ „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Höggin dynji á sjávarútveginum og áhugi kvenna á iðnstörfum minnkar Erlendur ferðamaður féll í Brúará Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“ Sjá meira