Innlent

Mastrið losnaði úr festingum

Mastrið á seglskútunni Svölu, sem togskipið Ársæll Sigurðsson er að draga í land, losnaði úr festingum sínum í nótt og féll. Skiperjar á Ársæli náðu því um borð í Ársæl en nokkur töf varð vegna þessa. Fyrir utan mastrið virðist skútan, sem er 34 feta löng, lítið skemmd. Ef veður helst gott reiknar Viðar Sæmundsson, skipstjóri á Ársæli, með því að koma með skútuna til Hafnarfjarðar í fyrramálið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×