Djöfulleg breyting fyrir aldraða 4. ágúst 2005 00:01 "
Þetta er djöfulleg breyting fyrir gamla fólkið," segir Eggert Magnússon íbúi í Árbæ um breytt leiðakerfi Strætó bs. Hann beið eftir strætisvagni í Rofabæ þegar Fréttablaðið hitti hann. Hann er níræður og segist vera algjörlega háður strætisvögnunum til að komast leiðar sinnar. "Þetta nýja kerfi er svo margfalt verra heldur en það sem var áður, sérstaklega fyrir gamla fólkið" segir hann. Samkvæmt gamla leiðarkerfinu voru vagnar 10 og 11 hringleiðir um Árbæjarhverfin sem tengdu saman Selás og Breiðholt og enduðu á Hlemmi. Leið 110 tók Selásbrautina, Rofabæ, Bæjarháls, Ártúnsholt, Miklubraut, Hringbraut, Háskólann og endaði á Lækjartorgi. Með nýja kerfinu voru þessar leiðir lagðar niður en í staðinn kom leið 25 sem fer um Rofabæ í Norðlingaholt og leið 5 sem fer frá Selási um Bæjarháls niður Vesturlandsveg, Miklubraut, Hringbraut niður í Lækjargötu og þaðan upp á Hlemm. "Áður gat ég tekið vagninn í Ártún og þaðan gengu vagnar í allar áttir," segir Eggert. "Nú þarf ég að fara á skiptistöð, þar sem ég þarf að klifra þrjá stiga til að komast í vagninn niður í bæ. Ég sé ekki hvernig gamla fólkið og aðrir sem eru með skerta hreyfigetu eiga að komast þetta, sérstaklega eftir að fer að snjóa og svell sest í stigana. Ég kemst til að mynda ekki niður á Landspítala né í Skeifuna lengur." Á næstu biðstöð í Rofabænum beið Aðalsteinn Guðmundsson. Hann er líka óánægður með nýja leiðakerfið. "Ég er búinn að bíða hér í korter," segir hann. "Ég hefði heldur átt að labba þetta. Það var að öllu leyti miklu þægilegra að hafa gamla kerfið, bæði styttra á biðstöðina og svo þurfti ég ekki að ganga eins langt til að komast í vinnu og úr. Það finnst öllum í mínum kunningjahópi þetta alveg fáránlegar breytingar því við notum ekki strætó nema af því að við þurfum þess."
Fréttir Innlent Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira