Sport

Ljungberg og Pires á förum

Svo virðist sem stjórn enska meistaraliðsins Arsenal sé reiðubúin að losa sig við nokkra knattspyrnumenn aðalliðsins í sumar. Meðal þeirra eru Robert Pires og Freddie Ljungberg að því er fram kemur í breska blaðinu The Observer í dag en samningar leikmannanna renna út innan árs. Ítölsku liðin Juventus og Inter Milan eru sögð vera á eftir Ljungberg auk Real Madrid sem vill einnig fá Calvin Klein fyrirsætuna í stjörnusafn sitt. Þá hefur Valencia á Spáni lengi haft áhuga á Robert Pires sem hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á því að leika á Spáni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×