Ráðherra lét leiðrétta launamuninn 24. október 2005 07:00 Árni Magnússon félagsmálaráðherra Vill veita fyrirtækjum sem viðhafa launajafnrétti gæðavottun um jöfn laun. Fyrirtæki, sem skara vilji fram úr geti notað vottunina í því skyni að efla ímynd sína og við markaðssetningu.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra lét fara ofan í saumana á launum starfsfólks félagsmálaráðuneytisins til þess að kanna hvort þar fyrirfyndist kynbundinn launamunur. Hann komst að því að svo væri og hrinti í kjölfarið af stað áætlun sem miðast að því að eyða launamun kynjanna, bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum. "Laun hvers einasta starfsmanns voru skoðuð og í ljós kom að í sumum tilfellum var til staðar launamunur milli einstaklinga sem ekki var hægt að skýra öðruvísi en út frá kyni. Við réðumst strax í að leiðrétta það," segir hann. Árni segir niðurstöðurnar hafa komið sér á óvart en þær séu jafnframt til marks um það hversu dulinn hinn kynbundni launamunur er. "Frá því að þetta var gert í ráðuneytinu hef ég lagt mjög þunga áherslu á það við forystumenn stofnana sem heyra undir ráðuneytið að þeir fari í sams konar vinnu," segir Árni. "Ég vildi sjá þetta gert í öllum ráðuneytum," segir hann. Þá segist Árni hafa velt því mikið fyrir sér hvaða leiðir hægt sé að fara til þess að bregðast við launamun kynjanna í einkageiranum. "Það er að sjálfsögðu bannað samkvæmt lögum að mismuna fólki í launum út frá kynferði en munurinn er samt sem áður til staðar," segir hann. "Hægt væri að skerpa betur þetta ákvæði lagalega en að mínu viti ætti frekar að reyna að gera það eftirsóknarvert hjá fyrirtækjum að geta sagt frá því að viðkomandi fyrirtæki líði ekki launamun kynjanna," segir Árni. Með það að markmiði hefur hann ákveðið að setja saman hóp sem samanstendur af stjórnendum í atvinnulífi og opinberum aðilum sem vinna á gæðakerfi þar sem sett verði upp viðmið og staðlar sem mæli kynbundinn launamun innan fyrirtækja. "Markmiðið er að koma á fót gæðavottun um jöfn laun sem hægt verði að veita þeim fyrirtækjum sem uppfylla þau skilyrði sem sett hafa verið um launajafnrétti og geta þá fyrirtæki sem vilja skara fram úr sótt um slíka vottun," segir Árni. Árni segist hafa hvatt konur í félagsmálaráðuneytinu til að taka þátt í kvennafrídeginum í dag en ekki síður hafi hann hvatt karlana til þess að bregðast við á jákvæðan hátt og ganga í störf kvenna. Hann segir niðurstöður úr launakönnun VR ekki hafa komið sér á óvart í sjálfu sér. "Þær sýndu hins vegar svart á hvítu að talsverður launamunur er enn á milli kynja. Hann er hægt að skýra að hluta með ýmsum hætti en að sumu leyti virðist hann eingöngu ráðast af kynferði, sem er algerlega óþolandi," segir Árni.
Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira