Starfsmannaleigan 2B: 24. október 2005 05:30 Í matsalnum Margir erlendir verkamenn starfa á Kárahnjúkum. Verkalýðsfélögin hafa í ófá skipti þurft að hafa afskipti af aðbúnaði þeirra og kjörum. Myndin tengist ekki pólsku verkamönnunum sem starfsmannaleigan 2B flutti inn.
Í fundargerðum Odds Friðgeirssonar, trúnaðarmanns á Kárahnjúkasvæðinu sem birt er að fullu á rafis.is kemur í ljós að fulltrúi starfsmannaleigunnar 2B hafi ráðlagt verkstjóra Suðurverks að lemja pólska verkamenn, sem 2B fluttu inn til vinnu við Kárahnjúka, ef þeir sýndu mótþróa. Grétar Ólafsson, verkstjóri Suðurverks staðfestir að Eiður Eiríkur Baldvinsson, framkvæmdastjóri 2B hafi sagt honum að lemja mennina og að margir væru vitni að þeim ummælum. Eiður segir málið byggt á misskilningi. "Ég sagði að tungumálaörðugleikar yrðu framundan og að það þyrfti að sýna þeim góða verkstjórn og góðan aga," segir Eiður sem ber upp á Odd Friðgeirsson að hann hafi síðastliðna mánuði reynt að koma starfsmannaleigunni á kné einungis vegna þess að honum líki ekki starfshættir hennar, en leigan tekur gjald af skjólstæðingum sínum fyrir að fá að vinna á Íslandi. Eiður heldur því fram að slíkt sé ekki ólöglegt og þessi gjaldtaka sé heimil. Oddur er á öðru máli. "Gjaldtaka sem þessi af launamanni fyrir vinnu er óheimil og þar með ólögleg. Launamaðurinn ræður sig í vinnu gegn umsömdum launum og þau laun ber honum að fá. Hann á ekki að borga fyrir að fá vinnuna," segir Oddur. Ein af þeim sökum sem bornar eru á 2B er að fyrirtækið hafi haft aðgang að bankareikningum starfsmannanna sem Pólverjarnir telja sig ekki hafa gefið leyfi fyrir. Eiður segir rétt að starfsmannaleigan hafi haft aðgang að bankareikningunum en því hafi verið breytt eftir fyrstu útborgun. Þá segir í fundargerð Odds að mönnunum hafi verið ráðlagt af starfsmannaleigunni að halda sig frá Íslendingum þar sem þeir álitu Pólverja drykkjurúta og þjófa. Þá hefði þeim einnig verið gert ljóst að allar skemmdir sem þeir hugsanlega ynnu, líka óviljandi, yrðu þeir að borga. Eiður ber þessar sögur til baka og segir að starfsmönnum hafi verið tjáð að þeir væru tryggðir með viðbótartryggingu vegna allra slysa.
Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira