Innlent

Óeirðirnar í Frakklandi í rénun

Óeirðirnar í Frakklandi eru í mikilli rénun og talsmenn lögreglunnar sögðu í kvöld að glæpir væru nú engu fleiri en áður en alda óeirða blossaði upp fyrir tæpum þremur vikum.

Síðustu nótt var kveikt í tæplega hundrað bílum, sem er svipað og flestar nætur áður en óeirðirnar miklu hófust. Þrátt fyrir það eru um 10 þúsund lögreglumenn á vakt í nótt, ef ske kynni að óeirðirnar myndu breiðast út á ný. Alls hafa meira en 9.000 bílar verið eyðilagðir undanfarnar þrjár vikur í Frakklandi og meira en 9.000 manns handteknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×