Sport

Henman úr leik á Opna ástralska

Englendingurinn Tim Henman féll úr keppni á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í morgun þegar hann tapaði fyrir Rússanum Nikolay Davydenko. Bandaríkjamaðurinn Andy Roddick, Ástralinn Leyton Hewitt og Argentínumennirnir David Nalbandian, Guillermo Canas og Guillermo Coria eru allir komnir í 16 manna úrslit. Flestar sterkustu tenniskonur heims eru komnar áfram. Elena Dementieva frá Rússlandi sigraði Danielu Hantuchovu 2-1 í morgun. Venus Williams vann öruggan sigur á ísreaelskum mótherja og þá áttu Lindsay Davenport og Anastasia Myskina ekki í neinum vandræðum með að tryggja sér sæti í fjórðu umferð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×