Heppnin ekki með Skagamönnum 12. júní 2005 00:01
Fyrsta markalausa jafntefli sumarsins leit dagsins ljós í Laugardalnum í gær þegar ÍA heimsótti Fram. Fyrri hálfleikurinn var mjög fjörlegur en fátt gerðist í þeim síðari. Skagamenn tóku aðeins eitt stig með sér úr viðureign sinni gegn Fram í Landsbankadeildinni í gær þrátt fyrir að hafa verið betra liðið á vellinum. Tvívegis náðu Framarar að bjarga á marklínu, og þá áttu gestirnir skalla í stöngina. Fyrri hálfleikurinn var ansi fjörugur og bæði lið fengu sín færi, litlu mátti muna að Fram næði forystu á 8.mínútu þegar Heiðar Geir Júlíusson átti fasta sendingu sem Bjarki Guðmundsson markvörður missti undir sig, Reynir Leósson var þó réttur maður á réttum stað og bjargaði á marklínu. Bjarki stóð í markinu í fyrsta sinn í sumar en hann var fenginn til liðsins þegar Þórður Þórðarson neyddist til að hætta vegna veikinda. Um miðjan fyrri hálfleikinn hófst fín sóknarlota Skagamanna með því að Unnar Örn Valgeirsson komst í dauðafæri en Gunnar Sigurðsson varði vel. Þar á eftir fékk liðið þrjár hornspyrnur í röð og á endanum bjargaði Ross McLynn á marklínu frá Finnboga Llorenz. Ríkharður Daðason átti ágætis skot seint í fyrri hálfleik en meira ógnuðu heimamenn ekki upp við mark ÍA. Síðari hálfleikur var ekki næstum eins fjörugur og sá fyrri en Skagamenn mun hættulegri. Sigurður Ragnar Eyjólfsson kom inn sem varamaður og fékk tvö mjög góð færi til að skora með skalla, í fyrra skiptið hafnaði boltinn í stönginni og fór framhjá í því síðara. Ekkert mark var skorað og fyrsti markalausi leikur sumarsins staðreynd. "Þetta var alveg rosalega dapurt hjá okkur og klúður hjá Skagamönnum að ná ekki sigri. Það sýndi sig þó að við getum varist ágætlega þó það sé pressa á okkur allan tímann. Ég get ekki verið annað en sáttur við stigið." sagði Gunnar Sigurðsson, markvörður Fram, eftir leik en hann vildi þó meina að liðið hefði ekki leikið eins illa og í fyrri hálfleiknum gegn Val. Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA, vildi skiljanlega fá meira úr leiknum. "Miðað við færin sem við fengum í þessum leik er svekkjandi að fá bara stig, ég er þó sáttur við spilamennsku okkar. Varnarspilið gekk vel og við vonum bara að það gangi betur hjá okkur að nýta færin á miðvikudag."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sport Fleiri fréttir Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Dagskráin í dag: Grindavík getur tryggt titilinn á heimavelli Kane sektaður en ekki settur í leikbann Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Óstöðvandi Sinner sló met Djokovic Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð „Ég tek fulla ábyrgð“ Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Sjá meira