Tók son sinn í gíslingu 29. maí 2005 00:01
Maður ruddist inn á sjúkrahús í Blekinge í Karlskrona-héraði í Svíþjóð í gær og tók son sinn í gíslingu. Hann hótaði að kveikja í sér og syninum. Maðurinn er 33 ára gamall Aseri en í nóvember síðastliðnum ákváðu sænsk stjórnvöld að vísa honum og fjölskyldu hans úr landi og aftur til Aserbaídsjan. Sá úrskurður var staðfestur í þarsíðustu viku. Talið er að í örvæntingu sinni vegna úrskurðarins hafi maðurinn ákveðið að grípa til örþrifaráða. Hann óð því inn á sjúkrahúsið í Blekinge í gærmorgun þar sem fimmtán ára gamall sonur hans er vistaður. Í farteskinu hafði maðurinn tvær fullar flöskur af glærum vökva sem talinn er vera bensín eða eldsneyti af öðru tagi að því er dagblaðið Dagens Nyheter hermir. Maðurinn fór inn á herbergi sonar síns með flöskurnar, læsti sig þar inni og hótaði að kveikja í. Talsverð skelfing greip um sig á sjúkrahúsinu vegna þessarar uppákomu. Lögregla og starfsfólk hófust þegar handa við að rýma þá álmu hússins sem feðgarnir halda sig í og síðdegis var svo túlkur fenginn á vettvang til að tala um fyrir manninum. Lyktir þessa dapurlega máls voru ekki ljósar þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Sjá meira