Stjórnarandstæðingar bæta við sig 29. maí 2005 00:01
Fyrsti hluti líbönsku þingkosninganna hófst í gær en þá var kosið í höfuðborginni Beirút. Búist er við að andstæðingar Sýrlendinga muni auka hlut sinn verulega á líbanska þinginu. Þingkosningar fara fram í Líbanon í þessum mánuði og var fyrsti hluti þeirra haldinn í Beirút í gær. Þetta eru fyrstu kosningarnar í landinu í áraraðir sem eru ekki haldnar undir vökulu auga Sýrlendinga en síðustu sýrlensku hermennirnir yfirgáfu landið á dögunum eftir mikinn þrýsting frá Líbönum sjálfum og stórs hluta alþjóðasamfélagsins í kjölfar morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons.. Kjörsókn í gær var sæmileg en að líkindum hefur dregið úr áhuga fólks á kosningunum að sjálfkjörið var í níu af þeim nítján þingsætum sem kosið var um. Úrslit munu líklega liggja fyrir í dag en fastlega er búist við að stjórnarandstöðunni muni vaxa fiskur um hrygg en hún mótmælti mjög afskiptum Sýrlendinga af líbönskum innanríkismálum. Næstu þrjá sunnudaga verður svo kosið um afganginn af þingsætunum 128.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Sjá meira