Vilja samstöðu gegn hernaði 29. maí 2005 00:01
Stúdentar í Suður-Kóreu vilja að íbúar Suður- og Norður-Kóreu standi saman í andstöðu gegn hernaðaráformum Bandaríkjanna á Kóreuskaga. Þúsundir stúdenta í Suður-Kóreu mótmæltu á götum úti í dag. Talið er að fimmtán þúsund stúdentar hafi tekið þátt í mótmælunum sem fram fóru við sendiráð og herstöð Bandaríkjanna í borginni Seúl. Að minnsta kosti tólf mótmælendur særðust í átökum þegar þeir reyndu að brjóta sér leið að herstöðinni fram hjá sveit öryggislögreglunnar. Í kjölfarið var á þriðja tug þeirra handtekinn. Stúdentarnir krefjast þess að Bandarísk stjórnvöld kalli herafla sinn frá landinu, en um 32 þúsund bandarískir hermenn gegna herþjónustu í Suður Kóreu. Bandaríkjaher hefur haft bækistöðvar þar frá því Kóreustríðið geisaði um miðja síðustu öld og gætt landamæra Norður- og Suður-Kóreu. Mótmælendurnir kröfðust að fá að ræða við bandaríska sendiherrann, en hann sá sér ekki fært um að verða við þeirri bón, og hélt sig innandyra. Þeir halda því enn fremur fram að Bandaríkjamenn ráðgeri að ráðast inn í kommúnistaríkið Norður-Kóreu og að það komi til með að stefna öllum íbúum á Kóreguskaganum í hættu. Song Hyo-Won, leiðtogi stúdenta, segir að fyrsta áætlun Bandaríkjanna um að ráðast inn í Norður-Kóreu hafi komið fram 1998. Áætlun um svo hættulega aðgerð sýni greinilega að Bandaríkjamenn hyggjast hefja stríð á Kóreuskaganum. Stríð í þessum heimshluta yrði Suður-Kóreumönnum erfitt og það þýtt tortímingu bæði Norður- og Suður-Kóreu. Bæði löndin verði að taka höndum saman og koma í veg fyrir slíkt stríð.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Sjá meira