Stefna á að halda áfram loðdýraræktun 15. nóvember 2005 12:12
Blóðsjúkdómur í minkum hefur greinst á bæ í Skagafirði og skera þarf niður rúmlega þúsund dýr á bænum. Sjúkdómurinn greindist síðast árið 1996. Grunur leikur á smiti á öðrum bæ í Skagafirði. Hjónin Haraldur Stefánsson og Ragnheiður Kolbeinsdóttir, bændur á bænum Brautarholti í Skagafirði, þurfa að aflífa allan minkastofn sinn þar sem blóðsjúkdómur greindist í minkunum. Haraldur segir að niðurskurður sem þessi sé alltaf ákveðið tjón, þrátt fyrir að ríkið greiði einhverjar bætur. Hann segir að það geti tekið allt að ár þar til þau geti fengið ný dýr í húsin, en það taki tíma sinn að þrífa og sótthreinsa minkahúsið og fá nýjan stofn. Þetta er í annað sinn sem þau hjónin þurfa að skera niður bústofn sinn en árið 1987 greindist riða á bænum og því þurfti að skera niður allan sauðfénað. Þau hófu minnkabúskap í framhaldi en minnkarnir hafa verið þeirra aðalbúskapur síðan árið 1989. Þau hjónin eru þó ekki af baki dottin og stefna á að fara aftur út í loðdýraræktun að öllu óbreyttu. Einar E. Einarsson, loðdýraræktarráðunautur hjá Búnaðarsambandi Íslands, segir að síðast hafi komið upp blóðsjúkdómur í minkum árið 1996 en sjúkdómurinn sé þekktur meðal villtra minka sem aliminka hér á landi og erlendis. Sjúkdómurinn hefur áhrif á frjósemi og lífaldur dýranna og til lengri tíma litið sé engum greiði gerður að halda dýrunum áfram þó dýrin geti í sjálfu sér lifað með sjúkdóminn. Minkabændur taka árlega sýni út læðum sem eignast fáa unga eða eru geldar sem síðan er sent til rannsókna á rannsóknarstöðina að Keldum. Grunur leikur á smiti á öðrum bæ í Skagafirði en verið er að rannsaka sýni.
Fréttir Innlent Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira