Millifærði þýfi inn á tvo einkareikninga 8. desember 2005 07:00 Hörður Jóhannesson vísar á bug fréttum um að sá handtekni sé milliliður.
Þær rétt rúmu tvær milljónir króna, sem 25 ára maður er grunaður um að hafa stolið úr heimabönkum fjögurra einstaklinga fóru inn á tvo reikninga sem eru í eigu hans, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Maðurinn sem handtekinn var fyrr í vikunni situr í gæsluvarðhaldi og sætir yfirheyrslum. Um er að ræða fjögur þjófnaðarmál, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Fyrsta og stærsta upphæðin sem stolið var með þessum hætti úr heimabanka nam um það bil 1,5 milljónum króna. Sá þjófnaður átti sér stað í lok sumars. Síðasta málið af þessu tagi kom upp í fyrri viku, þegar millifærðar voru 100 þúsund krónur úr heimabanka ungs manns. Þær upphæðir sem stolið var í þessum fjórum málum fóru í öllu tilvikum inn á reikninga mannsins sem nú situr í gæsluvarðhaldi. @Mynd -FoMed 6,5p CP:HEIMABANKAR Kynntar voru í gær öryggisleiðbeiningar fyrir tölvunotendur til að forðast "trójuhesta" og aðra vírusa í tölvum sínum, ekki síst ef vista á heimabanka fólks. Meðal þess sem Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú er hvaða aðferðir hafi verið notaðar til að komast inn í heimabanka þeirra sem stolið var frá. Beinast sjónir einkum að aðferð sem notuð er í útlöndum þar sem tölvuþrjótar búa til lítil forrit sem þeir fela á heimasíðum. Ef tölvunotandi fer inn á þá heimasíðu, fer forritið yfir á tölvu hans, liggur þar í leyni, fylgist með því ef farið er inn á netbanka í tölvunni, skráir hjá sér aðgangsorð og lykilorð og sendir svo sjálft sig til baka með þeim upplýsingum. Þetta er svokallaður "trójuhestur," sem kom við sögu í þjófnaðarmálunum. g Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn í Lögreglunni í Reykjavík vísaði í gær á bug fréttum í fjölmiðlum þess efnis að maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi sé milliliður sem hafi millifært fjármuni yfir á reikning þriðja aðila. Hörður sagði, að yfirheyrslur yfir honum stæðu yfir og meðan rannsókn málsins væri ekki lokið myndi lögreglan ekki tjá sig um einstök efnisatriði þess.
Innlent Mest lesið Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Fleiri fréttir Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Sjá meira