Bankarnir tóku skellinn 8. desember 2005 07:00
Viðskiptabankar þeirra sem urðu fyrir því að stolið var úr heimabönkum þeirra bættu þeim að fullu þær fjárhæðir sem stolið var, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Um samtals rúmar tvær milljónir króna er að ræða í fjórum málum sem lögreglan í Reykjavík hefur nú til rannsóknar. Einn maður situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Fulltrúar banka og sparisjóða efndu til fundar í gærmorgun til að fara yfir öryggismál banka og sparisjóða vegna málsins. Að sögn Guðjóns Rúnarssonar, framkvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, hefur í kjölfar þjófnaðarmálanna verið lagður grunnur að auknum öryggisráðstöfunum fyrir viðskiptamenn bankastofnana. Þær eru í þremur þáttum. Í fyrsta lagi eru leiðbeiningareglur um hvernig best sé að ganga um öll tölvumál með tilliti til vírusvarna og aðgátar í tengslum við aðgangsorð. Í öðru lagi hafa allir bankar og sparisjóðir komið upp aukalykilorði sem viðskiptamaður þarf að nota þegar hann millifærir fjárhæð. Loks er verið að vinna að því að allir viðskiptamenn bankastofnana fái í byrjun næsta árs tæki með aðgangsorði sem breytist reglulega, jafnvel á mínútu fresti. Það þarf því að nota tækið nákvæmlega á þeirri stundu sem farið er inn í heimabankann. Það er því talið gagnast vel gegn "trójuhestinum" illræmda, sem virðist hafa verið notaður í flestum þjófnaðarmálanna. "Heimabankarnir halda áfram að vera eitthvert öruggasta tæki til fjármálaviðskipta sem menn hafa notað," segir Guðjón. Hann bendir á að nýju öryggisreglurnar sé hægt að nálgast á heimasíðu samtakanna, www.sbv.is, og heimasíðum bankastofnana.
Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira