Samruni 365 og Saga film skilyrtur 20. nóvember 2005 08:00 Útsendingarstjórn stöðvar tvö. 365 ljósvakamiðlar ehf. eiga og reka fjölda sjónvarps- og útvarpsstöðva. Myndin er tekin í síðasta fréttatíma Stöðvar tvö sem sendur var út frá Lynghálsi í Reykjavík, en sú starfsemi hefur nú færst yfir í Skaftahlíð þar sem fleiri miðlar 365 halda til.
Samkeppniseftirlitið telur samruna 365 ljósvakamiðla ehf. og fyrirtækisins Saga film ehf. skaðlegan samkeppni og hefur sett honum skilyrði. Farið er fram á fullan rekstrarlegan og stjórnunarlegan aðskilnað milli 365 ljósvakamiðla og tengdra fyrirtækja annars vegar og Sögu film hins vegar. Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins kemur fram að skilyrðin séu sett til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstur og tortryggni um upplýsingastreymi um keppinauta 365 ljóvakamiðla. "Við erum mjög ánægðir með þennan úrskurð," segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri 365 miðla. "Hann er í takt við það sem við bjuggumst við og vildum fá." Hann segir áður hafa komið fram að hugmyndin með kaupum 365 á Saga film hafi ekki verið að setja það fyrirtæki inn í rekstur 365, heldur hafi átt að flytja hluta af rekstri 365 inn í Saga film og byggja upp sjálfstætt fyrirtæki. "Úrskurður Samkeppnisstofnunar er á engan hátt íþyngjandi eða truflar okkar fyrirætlanir," segir hann og gerir ekki ráð fyrir að úrskurðurinn verði kærður. "Ég á ekki von á því, þó auðvitað sé ýmislegt í honum sem við hefðum ekki afgreitt með sama hætti. Almennt undirstrikar hann bara vilja okkar til að Saga film verði sjálfstætt fyrirtæki, á sama hátt og önnur fyrirtæki sem við tengjumst." Gunnar Smári nefndi þar fyrirtæki á borð við Ísafold og Pósthúsið sem bæði væru sjálfstæð. "Öfugt kannski við önnur fjölmiðlafyrirtæki sem hafa dreifingu, prentun og sjónvarpsframleiðslu inni í sjálfu fyrirtækinu. Okkar stefna hefur verið að kljúfa þetta frá þannig að þessi fyrirtæki fái starfað og vaxið á eigin markaði og á eigin forsendum." Meðal skilyrða sem Samkeppniseftirlitið setti fyrir samruna fyrirtækjanna var að stjórnarmenn, starfsmenn og eigendur að meira en 1 prósents hlutar í 365 ljósvakamiðlum og eða tengdum fyrirtækjum, megi ekki sitja í stjórn eða varastjórn Saga film og það sama gildi um maka, skyldmenni í beinan legg eða systkini. Þá er framkvæmdastjóra, starfsmönnum og stjórnarmönnum Saga film bannað að veita öðrum upplýsingar um viðskipti, viðskiptakjör og starfsfólki, eigendum og stjórnarmönnum bæði hjá Saga film og 365 ljósvakamiðlum gert að skrifa undir yfirlýsingu um þagnarskyldu.
Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira