Þórður sýnir ÍA mikinn drengskap 11. júlí 2005 00:01
Þórður Þórðarson, markvörður Landsbankadeildarliðs ÍA í knattspyrnu hefur farið fram á að samningi sínum við félagið verði rift. Þykir Þórður sýna mikinn drengskap gagnvart félaginu með þessari ákvörðun sinni en hann þurfti skyndilega að hætta knattspyrnuiðkun upp úr miðjum maí sl. vegna alvarlegra veikinda. Þórður hafði í nóvember sl. gert 2 ára samning við knattspyrnudeild ÍA en í KSÍ samningum milli félaga og leikmanna segir að leikmenn séu einungs tryggðir gegn meiðslum en ekki veikindum. Því hefði félagið orðið að standa við 2ja ára samninginn við Þórð sem með þessu afsalar sér launagreiðslum frá félaginu. Eiríkur Guðmundsson, formaður rekstrarfélags meistara- og 2. flokks karla hjá ÍA segir í fréttatilkynningu sem hann hefur sent út að ekki hafi staðið til annað en að efna samninginn við Þórð og þakkar markverðinum um leið fyrir íþróttamennskuna. Síðan Þórður hætti knattspyrnuiðkun hefur hann verið að þjálfa markmenn liðsins og er félagið í viðræðum við Þórð um að hann taki markmannsþjálfun allra flokka félagsins að sér. Þórður spilaði alla leiki liðsins sl. sumar og var valinn besti leikmaður liðsins. Hann er 32 ára og uppalinn Skagamaður, spilaði á Skaganum allt til ársins 1999 er hann hélt til Svíþjóðar og spilaði með Norrköpping. Tveim árum síðar kom hann aftur heim og spilaði eitt tímabil með Val og eitt með KA áður en hann snéri aftur á Skagann.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ronaldo verður ekki með á HM félagsliða Fótbolti Áhyggjufullir eftir tap gegn „algjöru meðalliði“ Íslands Fótbolti Annar risatitillinn kom gegn efstu konu heimslistans Sport Segir að Postecoglou sé „goðsögn“ í sögu félagsins Sport Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Fótbolti Gunnlaugur í sigurliði á sterkasta áhugamannamóti heims Golf Segir að eitrað hafi verið fyrir leikmönnum liðsins Fótbolti Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Íslenski boltinn Arnór Atla valinn þjálfari ársins Handbolti Fleiri fréttir Áhyggjufullir eftir tap gegn „algjöru meðalliði“ Íslands Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Ronaldo verður ekki með á HM félagsliða Segir að Postecoglou sé „goðsögn“ í sögu félagsins Annar risatitillinn kom gegn efstu konu heimslistans Gunnlaugur í sigurliði á sterkasta áhugamannamóti heims Leik lokið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum John Andrews: Höfum ekki þurft að pæla mikið í því Orri og félagar bikarmeistarar Englendingar enn með fullt hús stiga „Við fengum þrusu ræðu frá Nik í hálfleik“ Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi „Þetta var allt eftir handriti“ Uppgjörið: Breiðablik-FHL 6-0 | Sex Blikakonur á skotskónum Katla á skotskónum í fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Haaland: Ég mun spila bæði á HM og á EM Arnór Atla valinn þjálfari ársins FIFA enn á ný með hendurnar í olíupeningunum Gummi Ben fékk gullmerki Þórs afhent á Spáni Strákarnir hans Arnórs fara í oddaleik um bronsið Blómstra á meðan Valskonur eru sögulega slakar Ófárir Íslendingaliðsins halda áfram Liverpool hækkar tilboð sitt Man. United gat ekki neitt en græddi samt meiri pening Framlengja við markahæsta manninn sinn KA ræður manninn sem gerði KA/Þór að Íslandsmeisturum Leikmenn Tottenham sagðir öskuillir og í uppreisnarhug eftir brottrekstur Ange Lið í tyrknesku úrvalsdeildinni búið að kaupa Loga Segir að eitrað hafi verið fyrir leikmönnum liðsins Sjá meira