Við munum halda okkar striki 9. júlí 2005 00:01
Einn leikur verður á dagskrá Landsbankadeildar karla í knattspyrnu í kvöld, þegar ÍBV tekur á móti Fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Bæði þessi lið hafa verið í miklu basli í sumar, ÍBV er í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins sex stig úr níu leikjum, en Framarar hafa aðeins náð í tvö stig af átján mögulegum í síðustu sex leikjum sínum eftir prýðilega byrjun á mótinu þar sem þeir unnu meðal annars Eyjamenn 3–0 í fyrri leik liðanna sem fram fór í Laugardalnum. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram, segir sína menn staðráðna í að krækja í öll stigin í Vestmannaeyjum í kvöld. „Hásteinsvöllur hefur verið erfitt vígi fyrir lið til að sækja stig, en við ætlum okkur sigur engu að síður og það kemur bara í ljós í dag hvort við stöndum við það. Að mínu mati er ekki mikið af hlutum sem þarf að laga í leik liðsins til að fara að ná hagstæðum úrslitum, en það er eitt að tala um það og annað að gera það. Mér finnst líka kominn tími á að þeir sem telja sig stuðningsmenn liðsins fari að mæta á leiki og styðja við bakið á liðinu. Það tekst ekki að bæta árangur liðsins nema með sameiginlegu átaki og ég skora bara á alla þá sem telja sig stuðningsmenn Fram að fara að mæta á völlinn. Það er ekki stuðningsmönnunum að kenna ef liðið nær ekki árangri – en það getur aftur á móti verið þeim að þakka ef liðið nær að snúa við blaðinu," sagði Ólafur. „Við þurfum á öllu okkar að halda á lokasprettinum til að lenda ekki í verulegum vandræðum á þessu móti og það sem mér finnst við einna helst þurfa að laga er að skora meira af mörkum. Við ætlum okkur að taka á því, en ég mun ekki grípa til róttækra aðgerða til að breyta leik liðsins, ég legg upp með ákveðna hluti og við munum halda okkar striki áfram," sagði Ólafur ákveðinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hrókeringar í markmannsmálum Man City Enski boltinn Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Íslenski boltinn Spánverjar örugglega áfram þrátt fyrir vítaklúður Fótbolti Töpuðu stórt áður en þeir mæta Blikum í Meistaradeildinni Fótbolti Andri Fannar á leið frá Bologna enn á ný Fótbolti Vélmennið leiðir Opna breska Golf Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshöggvinn fyrir þetta Fótbolti Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Enski boltinn Reyndi allt til að koma kúlunni niður Golf Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hrókeringar í markmannsmálum Man City Cosic skaut Njarðvík á toppinn áður en hann fer til KR Spánverjar örugglega áfram þrátt fyrir vítaklúður Töpuðu stórt áður en þeir mæta Blikum í Meistaradeildinni Andri Fannar á leið frá Bologna enn á ný Vélmennið leiðir Opna breska Hófu titilvörnina á naumum sigri Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Afturelding að styrkja sig fyrir seinni hlutann Reyndi allt til að koma kúlunni niður Madueke skrifar undir hjá Arsenal Goðsögnin sorgmædd yfir aðstöðunni Lars Lagerbäck: Það verður enginn hálshöggvinn fyrir þetta Víkingur afturkallar Daða Berg: Fær ekki að spila bikarúrslitaleikinn Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Guðrún til Braga í Portúgal: „Nýr klettur í vörninni okkar“ Veiðimaðurinn leiðir á Opna breska Hörður tekur við starfi Arnars Guðjóns hjá KKÍ Fær átta milljarða frá tveimur félögum á tímabili þar sem hann spilar ekki leik Mbeumo gengur til liðs við Manchester United Sjáðu öll átta mörk Víkings og miðjumark Tryggva Arndís Diljá í úrslit á EM: „Ótrúlega gaman að hafa náð því“ Fimm íslenskir Evrópusigrar, sautján mörk í plús og met Blika og KR féll Mætti inn á með brúðkaupsmyndina á legghlífinni og breytti leiknum Nördarnir sem sigruðu Ísland: „Það fóru allir að hlæja“ Birnir Snær genginn til liðs við KA Hjálpaði til að vinna KR og var svo seldur Sló met Lennon og jafnaði met Atla Guðna Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir „Ég vildi prófa eitthvað alveg nýtt í umhverfi sem ég þekki ekki mikið“ Sjá meira