Segir ferjusiglingar leggjast af 5. september 2005 00:01 "
Veginum vestur á Barðaströnd hefur verið haldið opnum síðastliðna tvo vetur og samkvæmt vegalögum á ríkið ekki að styrkja ferjusiglingar þar sem heilsársvegur er," segir Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri. Jón bendir á að hlutar af veginum vestur séu ekki orðnir góðir enn og því hafi verið ákveðið að draga smám saman úr þátttöku ríkisins í ferjusiglingum yfir Breiðafjörð næstu fimm ár. "Hins vegar er ekki þar með sagt að ferjusiglingar séu úr myndinni," segir Jón. "Einkaaðilar mega vitaskuld gera út ferju." Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða, sem gerir út ferjuna Baldur, telur hins vegar að ferjusiglingar yfir fjörðinn muni leggjast af hætti ríkið þátttöku sinni. "Þær bera sig kannski á sumrin en fráleitt að vetrarlagi," segir Pétur sem telur það mikla afturför í samgöngum ef áform ríkisins verða að veruleika. "Þótt við höfum verið heppin með færðina síðastliðna tvo vetur koma alltaf erfið tímabil þar sem fólk verður að treysta alfarið á ferjuna. Flutningabílar til dæmis, sem þurfa að koma farmi í flug á réttum tíma, stóla á okkur langan part úr vetri." Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, telur það munu hafa talsverð áhrif á sveitarfélagið leggist ferjusiglingar af yfir vetrartímann. "Miðað við óbreytt ástand er ljóst að samkeppnishæfni sjávarútvegsfyrirtækja á svæðinu mun skerðast, þar sem þau reiða sig á ferjuna til að koma ferskri vöru á áfangastað á veturna. Eins yrðu áhrifin á íbúana þónokkur. Við erum eins og eyland þegar það er snjóþungt og þótt snjór hafi verið lítill undanfarið, hefur hálka verið áberandi og gert landleiðina erfiða yfirferðar." Ferjan Baldur siglir í Flatey á Breiðafirði en Jón segir að á meðan föst búseta er í eyjunni verði samgöngum þangað haldið úti, þó í annarri mynd til dæmis með smærri bátum.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Innlent Fleiri fréttir Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Sjá meira