Seldi ættingja eign 9. nóvember 2005 19:33
Fasteignasali sem seldi syni sínum íbúð braut gegn lögum um sölu fasteigna samkvæmt áliti eftirlitsnefndar Félags fasteignasala. Nefndin skorar á fasteignasalann að bæta þegar ráð sitt. Er sú áskorun nokkurs konar gult spjald og undanfari áminningar, en hún breytir hins vegar engu um sölu eignarinnar. Par sem bauð í íbúðina á móti syni fasteignasalans kvartaði til eftirlitsnefndar Félags fasteignasala vegna sölumeðferðarinnar, þar sem það taldi ekki geta staðist lög að fasteignasali hefði milligöngu um að selja barni sínu fasteign, þar sem hann á að gæta hagsmuna allra aðila jafnt. Sonur fasteignasalans keypti íbúðina, sem er við Bólstaðarhlíð í Reykjavík. Niðurstaða nefndarinnar er ótvíræð: fasteignasalinn braut lög - það skiptir engu hvort seljandi íbúðarinnar hafi vitað um tengsl kaupandans og fasteignasalans og samþykkt söluna þrátt fyrir þau, enda er engin undantekning þess efnis í núgildandi lögum. Eftirlitsnefndin skorar á fasteignasalann að bæta ráð sitt, geri hann það ekki er hægt að áminna hann og brjóti hann ítrekað af sér má svipta hann tímabundið löggildingu til fasteignasölu. Nefndin sektar hins vegar ekki fasteignasala sem gerast brotlegir, eins og tíðkast í Danmörku til dæmis, heldur verða kvartendur að fara fyrir dómstóla vilji þeir fá kaupunum rift og fasteignasalanum refsað með einhverjum hætti. Sigurður Helgi Guðmundsson, formaður Húseigendafélagsins sem haft hefur milligöngu um málið fyrir hönd kvartenda, segir þau ánægð með niðurstöðuna, hún sýni klárlega að brotið hafi verið á þeim og sé skýr skilaboð til fasteignasala. Hann á síður von á að þau fari með málið áfram þótt staðfest hafi verið að lög hafi verið brotin, tilgangurinn hafi fyrst og fremst verið að fá brot fasteignasalans á hreint, öðrum til varnaðar og leiðbeiningar.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Sjá meira