Fundurinn með Óla Stefáni gekk vel 14. júní 2005 00:01
Í gær var haldinn sáttafundur hjá knattspyrnudeild Grindavíkur. Mættir voru forráðamenn félagsins, Milan Stefán Jankovic og Óli Stefán Flóventsson. Tilefni fundarins var að sætta aðila eftir að upp úr hafði soðið á milli þjálfarans og leikmannsins en Óli Stefán var settur í agabann eftir að hafa skellt sér út á lífið eftir landsleik Íslands og Ungverjalands, átta dögum fyrir næsta leik sem var gegn Fylki. „Ég ætla að ræða við hann um allt og allt. Það kemur svo í ljós hvað gerist,” sagði Óli Stefán fyrir fundinn en ekki náðist í hann áður en blaðið fór í prentun í gærkvöldi. „Ég skulda öllum í kringum fótboltann í Grindavík það að reyna eitthvað að leysa málin. Það eru tveir að deila og það verður að mætast á miðri leið ef eitthvað á að gerast.” Að sögn Jónasar Þórhallssonar, formanns knattspyrnudeildar Grindavíkur, gekk fundurinn vel og á hann ekki von á öðru en að Óli Stefán haldi áfram hjá Grindavík. Hann sé með þriggja ára samning við félagið sem hann skrifaði undir í haust og að ekkert hafi breyst í þeim málum. Óli Stefán er leikreyndasti leikmaður Grindavíkur og hefur leikið á annað hundrað leiki með liðinu í efstu deild. Hann og Milan Stefán Jankovic hafa unnið saman allar götur síðan 1992, fyrst sem leikmenn en svo með núverandi hætti ef frá eru talin þau tvö ár sem Milan Stefán þjálfaði Keflvíkinga. Það er vitað að sem þjálfari heldur Milan Stefán uppi miklum aga meðal leikmanna sinna og því ekki óeðlilegt að einhverntímann komi upp árekstrar í samstarfinu. Ekki náðist í Óla Stefán sem fyrr segir og því verður að koma í ljós hvort vilji sé hans megin til að halda áfram sem leikmaður Grindavíkur. Engin æfing var hjá liðinu í gærkvöldi en það verður æft í kvöld. Óli Stefán er boðaður á æfinguna.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Sport Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Fleiri fréttir Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Hefja viðræður um kaup á Tonali Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Sjá meira