Skora á þingmenn að hafna frumvarpinu 5. desember 2005 16:38 MYND/Vísir
Íbúasamtök Laugardals skora á alþingismenn að hafna frumvarpi um ráðstöfun á andvirði Landssímans, þar sem skilyrt er í athugasemdum frumvarpsins að við lagningu Sundabrautar verði farin svokölluð innri leið. Í áskorun samtakanna segir að samkvæmt umhverfismati og úrskurði umhverfisráðherra skuli gera ráð fyrir víðtæku samráði við hagsmunaðila beggja vegna Elliðavogs. „Samráð" um fyrirframgefna lausn séu aftur á móti engin samráð. Þannig telja Íbúasamtökin lagafrumvarpið í óbreyttri mynd brjóta bæði gegn umhverfismatinu og úrskurði ráðherra.Í áskoruninni segir orðrétt: Hæstvirtir þingmenn Reykjavíkur.Vegna frétta um að til standi að samþykkja frumvarp til ráðstöfunar á andvirði Landssímans, þar sem skilyrt er í athugasemdum að við lagningu Sundabrautar verði farin svokölluð innri leið, skora Íbúasamtök Laugardals á þingmenn Reykvíkinga og alþingismenn alla að hafna frumvarpinu svo óbreyttu.Samkvæmt umhverfismati og ennfremur samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra skal gera ráð fyrir víðtæku samráði við hagsmunaðila beggja vegna Elliðavogs. Þannig telja Íbúasamtökin lagafrumvarpið í óbreyttri mynd brjóta gegn umhverfismatinu sem og úrskurði ráðherra.Íbúasamtökin telja framkvæmdina sjálfa í þeirri mynd sem kynnt hefur verið beinlínis skapa heilbrigðisvandamál fyrir íbúa viðkomandi hverfa og sem slíka vinna gegn 1. grein frumvarpsins er kveður á um að markmið laganna sé að mæla fyrir um ráðstöfun söluandvirðisins til að styrkja innviði íslensks þjóðfélags meðal annars til framkvæmda sem nýtast munu á sviði samgöngu- og heilbrigðismála.Um er að ræða eitthvert stærsta hagsmunamál tugþúsunda borgarbúa beggja vegna Elliðavogs og mun framkvæmdin hafa gríðarleg áhrif á umhverfi þeirra og lífsgæði öll. Umhverfisáhrif framkvæmdarinnar tefla heilbrigði og öryggi íbúa viðkomandi hverfa í tvísýnu. Í bókun borgarstjórnar, sem samþykkt var samhljóða, var samráði lofað við íbúa nærlægra hverfa.Samráð um fyrirfram gefna lausn eru engin samráð og slík skilyrði munu hvorki leiða til farsællar né friðsamlegrar niðurstöðu í svo ríku hagsmunamáli.Virðingarfyllst,Íbúasamtök Laugardals
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira