Gera þarfir sínar í töskur skólasystkina sinna 2. desember 2005 19:41 MYND/Stefán
Einelti hefur tekið á sig heldur ógeðfellda mynd í Hafnarfirði, þar sem unglingar í Víðistaðaskóla gera þarfir sínar í töskur skólasystkina sinna. Hann lætur ekki mikið yfir sér Víðistaðaskóli þar sem hann hvílir værðarlega í hafnfirsku hrauninu. Innan dyra hafa hins vegar ítrekað komið upp leiðinleg eineltismál sem náð hafa nýjum hæðum. E inhverjir nemenda hafa gert þarfir sínar ofan í skólatöskur annarra nemenda. Foreldrar barna í níunda bekk f engu bréf á dögunum vegna þessa se m kallað er afar leiðinlegt og ógeðfellt atvik og þar eru þeir beðnir um að upplýsa málið. Sigurður Björgvinsson, skólastjóri Víðistaðaskóla, vildi ekki veita viðtal vegna þessa í dag en sagði að sér þætti þetta atvik leiðinlegt og það væri alls ekki lýsandi fyrir skólann eða nemendur hans. Hér væri um einstakt tilfelli að ræða. Fréttastofa NFS hefur hins vegar rætt við foreldra nokkurra barna í Víðistaðaskóla í dag og þeir segja farir sínar ekki sléttar. Í fyrrnendu béfi er talað um atvikið í fleirtölu en eftir því sem næst verður komist fengu nokkrar skólatöskur þessa sömu meðferð á dögunum og fréttastofa hefur spurnir af fleiri slíkum tilfellum. Hið fyrsta átti sér stað fyrir nokkrum vikum. Foreldrarnir segjast líka óhressir með hvernig tekið hefur verið á þessu máli. Sökudólgurinn sé ófundinn og varla dugi að biðja foreldra að leika spæjara í gegnum börnin sín, skólayfirvöld þurfi að taka á málunum. Sumir foreldranna tóku svo djúpt í árinni að segja illa tekið á einelti í Víðistaðaskóla. Ekki sé til nein áætlun um það hvernig tekið skuli á því, ekkert eineltisteymi eða greið leið fyrir tilkynningar. Forráðamenn skólans verði því að hysja upp um sig.
Fréttir Innlent Mest lesið Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Innlent „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Innlent Ferðamaður lést við Breiðamerkursand Innlent Falið ofbeldi gegn eldri borgurum: „Þetta er barnið mitt, ég ól það upp, gerði ég mistök?“ Innlent „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Innlent Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Innlent Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Innlent Hafi látið högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Erlent „Í Evrópumálum tel ég að þetta sé ekki rétti tíminn að fara í þá vegferð“ Innlent Fleiri fréttir Níu ára og með sitt eigið „Fannars bakarí“ í Njarðvík Ökumenn eigi að njóta en ekki þjóta á hættulegustu helgi ársins Eldri borgarar sem verði fyrir ofbeldi ættingja geti hvergi leitað Aldraðir beittir ofbeldi af ættingjum og gervigreindarmistök lögreglu Ferðaþjónustuþorpið Vík: „Við erum ein á báti“ Tjaldsvæði á Norðurlandi óðum að fyllast Framkvæmdir við Hvammsvirkjun stöðvaðar Borgin hafnar yfirlýsingum KSÍ Fólk varist dúfur í Vestmannaeyjum Ógnaði vegfarendum með stórum hníf Ferðamaður lést við Breiðamerkursand „Í Evrópumálum tel ég að þetta sé ekki rétti tíminn að fara í þá vegferð“ Falið ofbeldi gegn eldri borgurum: „Þetta er barnið mitt, ég ól það upp, gerði ég mistök?“ Ísbjarnareftirlit á Vestfjörðum Íslenskum nemendum fækkar en erlendum fjölgar Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Þyrlan kölluð út vegna bráðra veikinda á Breiðamerkursandi Ofbeldi gegn eldri borgurum oft hulið Aukið viðbragð í öllum deildum lögreglu Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Sendinefnd ESB tjáir sig ekki um tollana Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Breiðan „tjakkast upp“ og varað við framhlaupi við hraunjaðrana Meiddist á handlegg og fótum þegar glerhurð brotnaði „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Komu göngumönnum í sjálfheldu til aðstoðar Á bát í Kyrrahafi þegar skjálftaflóðbylgjur skullu á Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar Sjá meira