Sveltir sig vegna bágra kjara 7. desember 2005 22:00 Sonja á heimili sínu í dag. MYND/NFS
Tæplega sjötug kona sem er öryrki vegna geðsjúkdóms er nú í hungurverkfalli vegna kjara sinna og annarra öryrkja. Hún kveðst ekki ætla að hætta sveltinu nema kjör öryrkja og aldraðra verði gerð mannsæmandi. Sonur hennar segir baráttu öryrkja við kerfið, erfiðari en baráttu öryrkja við sjúkdóma. Sonja Haralds er tæplega sjötug. Hún hefur verið öryrki vegna geðsjúkdóma frá árinu 1985 og segir kjör sín hafa farið stöðugt versnandi á þeim tíma. Sonja ákvað því að efna til einu mótmælanna sem hún telur sig færa til að beita sem öryrki, að fara í hungurverkfall. Það hefur nú staðið í að verða tvær vikur. Á meðan neytir hún einungis vatns eða tes. Krafa hennar er mjög skýr. "Ég vill að ríkisstjórnin bæti öryrkjum, öldruðum og einstæðum mæðrum það sem tapast hefur frá árinu 1995," sagði Sonja. Þarna vísar Sonja í skrif Björgvins Guðmundssonar í Fréttablaðinu í september síðastliðnum. Þar benti Björgvin á að frá því tenging á milli lágmarkslauna annars vegar og lífeyrisgreiðslna aldraðra og almannatrygginga öryrkja hins vegar, hafi verið afnumin á árinu 1995, hafi síðarnefndu hóparnir tapað stórum upphæðum. Sonja segir hátíðirnar ekkert tilhlökkunarefni fyrir fólk í sinni stöðu. Sérstaklega ekki núna. "Það verða engin jól í ár," segir hún. Axel Björnsson er sonur Sonju. Hann er líka öryrki. Axel segir móður sína hafa leitað á náðir yfirvalda vegna þess að 90 þúsund krónurnar sem hún fái í bætur dugi henni hreinlega ekki. Hann segir félagsmálayfirvöld hafa tjáð henni að ekkert væri hægt að gera, framfærsla hennar væri nægjanleg samkvæmt viðmiði yfirvalda. Henni var vísað á ráðgjafarstöð um fjármál heimilanna, opinberrar stofnunar sem aðstoða á fólk í fjárhagserfiðleikum. "Þessi stofnun komst svo að þeirri niðurstöðu, að samkvæmt þeirra viðmiði þyrfti hún 30 þúsund til viðbótar á mánuði, bara til að ná endum saman," segir Axel. Og Axel telur móður sína ekki á leiðinni að gefast upp, þó hungurverkfall hennar sé nú komið á borð landlæknis. En þaðan fór málið frá lækni Sonju að sögn Axels. "Ég get lofað ykkur því að hún mun ekki gefast upp fyrr en yfir líkur," segir hann. "Það er að segja að kröfum hennar verði mætt eða að hún fari hreinlega yfir móðuna miklu."
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Sjá meira