Innlent

Miltisbrandssvæðið loks girt af

Nú er loks byrjað að girða í kringum staðinn þar sem miltisbrandssýking kom upp við bæinn Sjónarhól á Vatnsleysuströnd í desember í fyrra. Þrjú hross drápust úr miltisbrandssýkingunni og einu var lógað. Hræin voru brennd á staðnum og síðan stóð til að girða hættusvæðið innan nokkurra daga þar sem mikilvægt þótti að halda öllum skepnum fjarri. Mánuði síðar, eða 7. janúar sl., sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra að samkvæmt sínum heimildum ætti að ganga í málið á næstu dögum. Síðan eru liðnir aðrir þrír mánuðir og viti menn: það er loks byrjað að girða. Það má vera að mönnum hafi þótt erfitt að ákveða nákvæmlega hvar ætti að láta girðinguna liggja því ástæður miltisbrandssýkingarinnar í hrossunum eru ókunnar - ekkert fannst í jarðvegs- og vatnssýnum sem tekin voru á svæðinu. Málið allt er því nokkur ráðgáta því jarðrask hefur ekkert verið á jörðinni nema landbrot vegna brims. Enginn búskapur hefur verið á Sjónarhóli síðan árið 1960 en þrjár fjölskyldur eiga jörðina. Höfðu nokkrir sýnt henni áhuga þar til þetta mál kom upp en verðgildi jarðarinnar hefur að vonum rýrnað þar sem ekki er talið ráðlegt að hafa skepnur á beit í landinu. Hins vegar er ekki talið að mönnum stafi nokkur hætta af því að ferðast þar um.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×