Miltisbrandssvæðið loks girt af 5. apríl 2005 00:01
Nú er loks byrjað að girða í kringum staðinn þar sem miltisbrandssýking kom upp við bæinn Sjónarhól á Vatnsleysuströnd í desember í fyrra. Þrjú hross drápust úr miltisbrandssýkingunni og einu var lógað. Hræin voru brennd á staðnum og síðan stóð til að girða hættusvæðið innan nokkurra daga þar sem mikilvægt þótti að halda öllum skepnum fjarri. Mánuði síðar, eða 7. janúar sl., sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra að samkvæmt sínum heimildum ætti að ganga í málið á næstu dögum. Síðan eru liðnir aðrir þrír mánuðir og viti menn: það er loks byrjað að girða. Það má vera að mönnum hafi þótt erfitt að ákveða nákvæmlega hvar ætti að láta girðinguna liggja því ástæður miltisbrandssýkingarinnar í hrossunum eru ókunnar - ekkert fannst í jarðvegs- og vatnssýnum sem tekin voru á svæðinu. Málið allt er því nokkur ráðgáta því jarðrask hefur ekkert verið á jörðinni nema landbrot vegna brims. Enginn búskapur hefur verið á Sjónarhóli síðan árið 1960 en þrjár fjölskyldur eiga jörðina. Höfðu nokkrir sýnt henni áhuga þar til þetta mál kom upp en verðgildi jarðarinnar hefur að vonum rýrnað þar sem ekki er talið ráðlegt að hafa skepnur á beit í landinu. Hins vegar er ekki talið að mönnum stafi nokkur hætta af því að ferðast þar um.
Fréttir Innlent Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Fleiri fréttir Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Sjá meira