Foreldrar skiptast á að gæta barna 27. september 2005 00:01
Foreldrar í Grafarvogi segja ófremdarástand ríkja í leikskólamálum. Deildum á leikskólum er lokað dag og dag í senn, og dæmi eru um að foreldrar sem eiga fleiri en eitt barn á sama leikskóla missi tvo eða fleiri daga í viku hverri úr vinnu. "Okkur barst bréf undirritað af Halldóru Pétursdóttur, leikskólastjóra á Laufskálum í Grafarvogi, þar sem því var lýst yfir að óhjákvæmilegt væri að loka deildum á leikskólanum á næstunni. Ekki hefði tekist að ráða í stöður og við það bættust starfs- og undirbúningsdagar þeirra starfsmanna sem fyrir eru," segir Ásta Marta Róbertsdóttir, en dóttir Ástu er í Laufskálum. Ásta segir að foreldrar barna á leikskólanum Laufskálum skiptist nú á að vera heima með börnum sínum og hver annars. "Þetta er náttúrlega langsamlega erfiðast fyrir einstæðar mæður," bætir Ásta við. Ásta segist vita til þess að sambærilegt ástand sé á leikskólunum Lyngheimum og Fífuborg í Grafarvogi. Í gærkvöld var haldinn fundur í Laufskálum þar sem borgarfulltrúarnir Stefán Jón Hafstein og Guðlaugur Þór Þórðarson hittu leikskólakennara og foreldra. Ekki var laust við að nokkurra vonbrigða gætti hjá foreldrum sem rætt var við eftir fundinn. Marteinn Þorkelsson foreldri sagði að skilaboðin hefðu verið að foreldrar þyrftu að standa sína plikt, Laufskáli væri ekki eini leikskólinn sem byggi við skort á starfsfólki. Hvorki náðist í Stefán Jón Hafstein né Guðlaug Þór Þórðarson vegna málsins í gærkvöld. Halldóra Pétursdóttir leikskólastjóri meinaði starfsmanni Fréttablaðsins aðgangi að fundinum og sagðist enga umfjöllun vilja um þessi mál. Hún sagði í samtali að blaðið ætti frekar að fjalla um börn að leik. "Það er enginn ávinningur af því að fjalla meira um þetta mál í fjölmiðlum en orðið er," segir Halldóra Pétursdóttir leikskólastjóri.
Fréttir Innlent Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fleiri fréttir Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Sjá meira