Enn vantar hjúkrunarrými 29. september 2005 00:01
Hjúkrunarheimili með hundrað og tíu rýmum rís í Sogamýrinni á þarnæsta ári. Það hrekkur þó skammt miðað við núverandi biðlista. Heilbrigðisráðherra vill leysa vandann með því að stórbæta heimaþjónustu við aldraða. Heilbrigðisráðherra og borgarstjóri undirrituðu í dag samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilisins, sem áætlað er að muni kosta um þrettán hundruð milljónir. Það verður tæpir sex þúsund og sjö hundruð fermetrar að stærð, með hundrað og tíu hjúkrunarrýmum. Reykjavíkurborg leggur til þrjatíu prósent kostnaðar, sem er helmingi meira en lög gera ráð fyrir. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir þörfina enda brýna. 259 manns bíði þannig eftir plássi á hjúkrunarheimili og vinna sé nú í gangi meðal Seltjarnarnessbæjar, heilbrigðisráðuneytisins og Borgarinnar um byggingu annars hjúkrunarheimilis til viðbótar við það í Sogamýrinni. Þá muni losna pláss fyrir um 200 manns. Steinunn segir það snúast um forgangsröðun að leggja meira fjármagn í málefni aldraðra en borgin þurfi samkvæmt lögum. Hún segir að ekki muni standa á borgaryfirvöldum að finna fjármagn ef heilbrigðisráðherra tekst að fá frekara fjármagn til að byggja hjúkrunarheimili. En jafnvel þó að vel gangi að minnka biðlistana, vill Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra einbeita sér að heimaþjónustunni, þar sem ekki sé hægt að leysa öll mál með því að fjölga stofnunum fyrir aldraða, sem þegar séu orðnar margar. Auglýst verður eftir rekstraraðila fyrir heimilið, þegar endanlega hefur verið gengið frá samningnum um byggingu þess.
Fréttir Innlent Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira