Um 100 brot gegn börnum tilkynnt á þremur mánuðum 26. nóvember 2005 07:00
Ein til tvær tilkynningar um grun um brot gegn börnum berast til Neyðarlínunnar 112 á hverjum einasta degi. Frá 1. september til dagsins í gær voru slíkar tilkynningar orðnar samtals 94. Um er að ræða grun um ofbeldi, vanrækslu eða brot af öðru tagi, að sögn Kristjáns Hoffmann, gæðastjóra 112. Þetta er fyrsta samantekt um slíkar tölur hjá Neyðarlínunni, en móttaka hennar á tilkynningum um brot gegn börnum hófst í febrúar fyrir rúmu ári. "Viðbrögð neyðarlínunnar við tilkynningum af þessu tagi eru mismunandi eftir því hvers eðlis brotið er," segir hann. "Tilkynning um ofbeldi gegn barni krefst til að mynda skjótari viðbragða heldur en sé um grun um vanrækslu að ræða. Við leitum alltaf samvinnu við viðkomandi barnarverndarnefnd þar sem lögheimili barnsins er til þess að fá afgreiðslu á málið. Vanrækslumálin gefum við til að mynda áfram beint yfir á vakthafandi barnaverndarnefnd, sé alvarleiki málsins knýjandi, eða gerum skýrslu um það sem fer þá til viðkomandi barnaverndarnefndar næsta dag." Kristján segir flokkun mála er varða velferð barna mjög skýra hjá Neyðarlínunni. Sé um einhvers konar lífsógn að ræða, svo sem ofbeldi gegn barni, sé strax brugðist við með viðeigandi neyðarráðum sem séu útkall lögreglu, sjúkrabifreiðar og læknis. Sé um að ræða mál sem fari í annan forgang og verði að afgreiða strax geri starfsmenn Neyðarlínu það með viðkomandi barnaverndarnefnd. Loks sé svo þriðji forgangur sem þýði að málin séu afgreidd til barnaverndarnefndar strax daginn eftir að tilkynning barst. Spurður hvort ástæða hafi verið til að kalla til lögreglu, sjúkrabíl og lækni á síðustu þremur mánuðum segir Kristján svo vera. "Því miður hefur verið gripið til þess oftar en einu sinni á þessu tímabili, en ég hef ekki nákvæmar tölur í þeim efnum handbærar," segir hann og segir enn fremur að tilkynningar um brot gegn börnum berist af öllu landinu. Fjöldi þeirra haldist í hendur við stærð viðkomandi sveitarfélags. Sjö stærstu bæjarfélögin standi upp úr hvað það varði. Kristján undirstrikar að Neyðarlínan vinni þennan málaflokk í afar góðu samstarfi við Barnaverndarstofu. Barnaverndarnefndirnar hefðu tekið þessu samstarfi mjög vel. Undirbúningurinn að þessu starfi Neyðarlínunnar sem varðar móttöku tilkynninga um brot gegn börnum hefði verið vandlega unninn, áður en það fór af stað. "Við tryggjum fullt öryggi allra persónuupplýsinga í samstarfi við Persónuvernd," segir Kristján. "Ef einhver hringir í 112, Neyðarlínuna, er hann kominn inn í nafnlaust umhverfi. Viðkomandi fær alla aðstoð strax, hvort sem er að nóttu eða degi, og málið fer strax í ákveðinn farveg eftir eðli þess. Við höfum umboð barnaverndarnefnda til að taka á móti þessum málum og setja þau í fyrirfram skilgreindan jarðveg. Þeir tuttugu mánuðir sem við höfum sinnt þessu starfi hafa gengið afar vel."
Innlent Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Sjá meira