Innlent

Fræðsla um kynferðisofbeldi

Menntaráð Reykjavíkur hefur ákveðið að fela menntasviði borgarinnar að efna til umræðu við fagfólk ogt foreldrasamtök um hlutverk skólanna í umræðu og fræðslu um kynferðisofbeldi gegn börnum. Kanna ber hvort æskilegt geti talist að skipa starfshóp með fulltrúum úr ráðinu, frá menntasviði, fulltrúum skólastjórnenda, kennara og foreldra sem hefði það hlutverk að leggja fyrir ráðið tillögur um hvernig skólarnir geti gegnt hlutverki í þessu sambandi.  Þannig þurfi að athuga hvernig fræðslu sé þörf á að fara með inn í skólana og hvernig kennarar og annað starfsfólk skólanna sé í stakk búið að greina málsatvik tengd kynferðislegu ofbeldi og takast á við þau.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×