Kjarasamningar í uppnámi 20. október 2005 00:01
Kjarasamningar eru í uppnámi, skattur á tekjum undir 175 þúsund krónum á að verða 14,75 prósent, og ef til vill stendur lítið íslenskt myntsvæði og óstöðugt efnahagslíf vaxtalækkunum fyrir þrifum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ályktanadrögum ársfundar Alþýðusambands Íslands. „Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru í uppnámi vegna mikillar verðbólgu og ójafnvægis í hagkerfinu. Við þessar aðstæður er sá ávinningur sem samningarnir áttu að skila launafólki að mestu horfinn." Svo segir í inngangi að tillögu um ályktun aðalfundar Alþýðusambandsins um kjaramál en búast má við því að hart verði tekist á í þeim málaflokki á næstu vikum. Einnig liggur fyrir fundinum ályktunartillaga um skattamál þar sem segir: „Forgangsverkefnin eru að lækka virðisaukaskatt á matvæli, hraða hækkun barnabóta og taka upp lægra skattþrep á lægri tekjur." Í ályktuninni er því mótmælt að skattalækkanir ríkisstjórnarinnar gagnist aðallega þeim sem hæstar hafi tekjurnar. Þannig er gerð tillaga um það í greinargerð með ályktanadrögunum að tekinn verði upp þrepaskiptur skattur og að þeir sem hafi tekjur undir 175 þúsund krónum greiði einungis 14,75 prósenta tekjuskatt. Í ályktunardrögum um lánamál fagnar ársfundur ASÍ jákvæðum breytingum á lánamarkaði en en krefst þess að áfram verði stigin markviss skref á allra næstu árum í að færa íslensk lánakjör að því sem gerist í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Í ályktunardrögunum er það sagt mikilvægt að skoðað verði hvort lítið íslenskt myntsvæði og óstöðugt efnahagslíf standi í vegi fyrir lækkun vaxta til lengri tíma. Einnig liggja fyrir fundinum drög að ályktunum um stefnu ASÍ í jafnrétti karla og kvenna, tillaga um lágmarksréttindi í sjúkrasjóðum, tillaga um sérstakt kynningarátak er varðar sterkari ímynd verkalýðshreyfingarinnar og tillaga um aðgerðir til að auka skilvirkni í starfi Alþýðusambandsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Sjá meira