Innlent

Allrahanda uppfylla ekki skilmála

Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri segir Iceland Excursions Allrahanda ekki hafa uppfyllt skilmála útboðs um sérleyfisakstur milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Þess vegna hafi ekki verið samið við fyrirtækið um aksturinn þrátt fyrir að það hafi boðið hæstu greiðslu fyrir aksturinn. Þess í stað var samið við Kynnisferðir sem vildu fá greitt með akstrinum. Stjórnendur Allrahanda saka Vegagerðina um að hafa sniðgengið ákvæði laga um opinber innkaup.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×