Einvígi Auðuns og Benna í dag 16. apríl 2005 00:01
Íslandsmótið í kraftlyftingum verður háð á Grand Hótel í dag og hefst klukkan 12 á hádegi. Mótið í dag er 20 ára afmælismót Kraftlyftingasambands Íslands og því hefur verið lagt mikið í undirbúning þessa 34. Íslandsmóts. Þegar þetta er skrifað hafa 19 keppendur verið skráðir til leiks á mótið, þar af þrjár konur. Íslandsmótið í kraftlyftingum er jafnan hápunktur vertíðarinnar hjá lyftingamönnum og það er mál manna að mótið í ár verði eitt það rosalegasta í manna minnum. Það sem bera mun hæst á mótinu í dag verður einvígi þeirra Benedikts Magnússonar og Auðuns Jónssonar í þyngsta flokknum. Auðunn hefur verið einráður í þungavigtinni undanfarin ár, en hinn kornungi Benedikt hefur verið að bæta sig gríðarlega á síðustu misserum og er orðinn einn besti réttstöðulyftari í heiminum í dag. Mikil eftirvænting ríkir fyrir baráttu þeirra "Tarfsins" og "Verndarans", eins og þeir Benedikt og Auðunn hafa verið kallaðir. Auðunn Jónsson segis vera í sínu besta formi þessa dagana og á besta árangur landsins í samanlögðu, 1.050 kg. Hann segist þó eiga nóg inni og stefnir á 1.100 kg múrinn í dag. "Ég hef aldrei verið sterkari en í dag og set því markið á 1.100 kílóin. Ég mun þurfa að ná góðum lyftum bæði í hnébeygjunni og bekknum til að slá Benna við," sagði Auðunn, sem á von á því að verða fyrstur Íslendinga til að taka 300 kíló í bekkpressunni, en hann á núverandi Íslandsmet í greininni, 290 kíló. Benedikt Magnússon er sannkallað undrabarn í íþróttinni, en þessi liðlega tvítugi drengur er nýkominn heim frá Bandaríkjunum úr sérstakri æfingaferð, þar sem hann var að taka vel á því. Hans sterkasta grein er réttstöðulyftan og þar hefur hann verið að setja nýja staðla upp á síðkastið. Benedikt á núgildandi Íslandsmet í greininni, sem er 400,5 kíló. Hann hefur hins vegar verið að leika sér með þá þyngd á æfingum síðustu vikur og því er engin leið að spá um hve hátt drengurinn getur farið í mótinu í dag. Hjalti "Úrsus" Árnason spáir því að metin muni falla í dag. "Þetta verður einfaldlega móðir allra móta. Það hefur ekki gerst áður að tveir svona hrikalegir menn séu að keppa hvor við annan í þessari keppni áður og möguleikar þeirra beggja að fara í 1100 kílóin eru góðir. Það sýnir bara að þetta sport er komið til að vera og gaman að þetta skuli einmitt eiga sér stað á 20 ára afmælismótinu," sagði Hjalti, sem býst við húsfylli á mótinu sem hefst klukkan 12 á hádegi í dag.
Íþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Körfubolti Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Fleiri fréttir Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Orri áfram heitur á Spáni Skoruðu eftir 15 sekúndur og Þórir fékk engu breytt Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sjá meira